Ferðasaga tveggja vina um að láta æskudrauma rætast

Út er komin bókin, Vinir Ferguson og Vestfjarða. Á traktorum gegn einelti. Dagbók hringfara. Sögur af sögum, fólki og stöðum. Bókin er gefin út til stuðnings Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti.

Öll eigum við okkur drauma. Að láta drauma sína rætast er ákveðin lífsfylling, gleði yfir því að væntingar hafa verið uppfylltar. Að æskudraumur rætist er ekki sjálfgefið. Þeir eru oftar en ekki óraunhæfir og barnalegir, sérstaklega eftir því sem árin líða. Með hringferð félaganna Karls Friðrikssonar og Grétars Gústavssonar um landið árið 2015 og með því að fara Vestfjarðaleiðina árið 2022 hafa þeir endanlega náð að láta draum sinn frá æsku rætast –að keyra Massey Ferguson, 35X árgerð 1963 hring í kringum um allt landið. Á sama tíma hafa þeir félagar skapað umræðu um alvarleika eineltis og stutt við Vináttu – forvarnaverkefni Barnaheillagegn einelti.

Mikael Torfason, rithöfundur, Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, skrifa ávörp í bókinni.

Bókina er að finna í verslunum Pennans Eymundssonar. Einnig er hægt að kaupa hana hér.

 


Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children sem vinna að réttindum og velferð barna með barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Barnaheill eru leiðandi afl í að breyta viðhorfum og verklagi varðandi málefni barna. Framtíðarsýn Barnaheilla er heimur þar sem sérhvert barn hefur tækifæri til að lifa og þroskast, fær gæðamenntun, lifir öruggu lífi og hefur tækifæri til að hafa áhrif.
Við stöndum vaktina í þágu barna og gætum réttinda þeirra.