Fjöregg framtíðarinnar - Réttindi barna

Í nýjasta tölublaði Uppeldis er grein eftir Guðbjörgu Björnsdóttur, formann Barnaheilla, Save the Children á Íslandi. Þar segir hún m.a. „Foreldrar hafa um margt fengið tvíræð og mótsagnakennd skilaboð frá samfélaginu. Þeir eiga að bera ábyrgðina á uppeldi barnanna og er óðara kennt um það sem úrskeiðis fer, meðan aðrir áhrifavaldar leggja hverja freistinguna á fætur annarri í götu ungmennanna."