Fjögur börn létust í sprengjuárásum í Sýrlandi

Barnaheill – Save the Children eru harmi slegin vegna dauða fjögurra barna, sem létust í gærmorgun í sprengjuárásum í Idlib héraði í Sýrlandi. Tveir starfsmenn samstarfssamtaka Save the Children létust einnig í árásinni.

Ein fjögurra ára stúlka lést á leið sinni í skólann í bænum Ariha þegar hún varð fyrir sprengjuárás. Tvö börn til viðbótar voru drepin í bænum Kafraya og það fjórða, 10 ára drengur, í borginni Idlib. Tugir annarra barna særðust.

Grunnskóli í bænum Kafraya, sem er rekin af samstarfssamtökum Barnaheilla - Save the Children í Sýrlandi, varð fyrir sprengjuárás, en öll 150 börnin sem þar voru inni náðu að flýja.

Einn kennaranna er harmi sleginn en er feginn að allir nemendurnir voru komnir inn.

Það var skotið á einn af veggjum skólans. Önnur sprengja féll einn eða tvo metra frá veggnum. Skólalóðin varð ein brunarúst og afleiðingarnar hefðu orðið hræðilegar ef börnin hefðu verið úti að leika þegar þetta gerðist.

Þrátt fyrir að enginn í skólanum hafði látist í árásinni, þá var einn nemandi í skólanum drepinn á heimili sínu ásamt bróður sínum. ,,Ein sprengjan lenti á húsi eins nemanda. Hann lést ásamt foreldrum sínum og bróður," heldur kennarinn áfram.

Í kjölfar þessara atvika, lokuðu Barnaheill – Save the Children tveimur bólusetningarmiðstöðvum, sem eru staðsettar í Idlib, af varúðarráðstöfun. Þessar bólusetningarmiðstöðvar veita um 500 börnum bólusetningu í hverjum mánuði.

Sonia Kush, viðbragðsstjóri Barnaheilla – Save the Children í Sýrlandi sagði þetta vera afar sorglegar fréttir.

Börn létust og önnur upplifðu ógnvekjandi atburði í morgunsárið, þegar þau bjuggust við hefðbundnum skóladegi. Það er skelfilegt að sjá skóla og borgaraleg svæði verða fyrir árásum. Skólar eiga að veita börnum öryggi. Óbreyttir borgarar halda áfram að bera hitann og þungann af árásum sem þessum. Við hvetjum alla stríðsaðila að ganga úr skugga um að börn og óbreyttir borgarar séu verndaðir og þar með virða alþjóðleg mannúðarlög.

Aðstæður fólks í Idlib héraði hefur verið mjög slæmar en undanfarna tvo daga hefur rignt gríðarlega mikið og m.a. valdið flóðum og töluverðri eyðileggingu í níu flóttamannabúðum.

Barnaheill – Save the Children kalla eftir því að átökum verði hætt strax en undanfarnar vikur hafa átök stigmagnast á nokkrum svæðum í norðvestri. Allir aðilar verða að virða alþjóðleg mannúðarlög og vernda skóla, sjúkrahús og aðra mikilvæga borgaralega innviði gegn árásum. Börn eru sérstaklega berskjölduð fyrir áhrifum sprengivopna og stríðsaðilar ættu að leggja sig fram við að vernda þau.

Börn eru enn að láta lífið þrátt fyrir samþykkt ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem hvatt er til þess að stríðsátökum verði hætt á heimsvísu vegna kórónaveirufaraldursins. Í stað vopnahlés eru átök að stigmagnast í Sýrlandi sem hindrar baráttuna gegn útbreiðslu kórónuveirufaraldursins.