Fyrirtæki marsmánaðar í Heillakeðju barnanna er Lýsi

Barnaheill – Save the Children á Íslandi, í samstarfi við tólf íslensk fyrirtæki, standa fyrir Heillakeðju barnanna 2012. Markmiðið er að vekja athygli á réttindum barna á Íslandi og safna fé til verkefna samtakanna í þágu barna. Fyrirtæki marsmánaðar er Lýsi.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi, í samstarfi við tólf íslensk fyrirtæki, standa fyrir Heillakeðju barnanna 2012. Markmiðið er að vekja athygli á réttindum barna á Íslandi og safna fé til verkefna samtakanna í þágu barna. Fyrirtæki marsmánaðar er Lýsi.

Einstaklingar og hópar geta tekið þátt í Heillakeðju barnanna með því að stofna sínar eigin heillakeðjur til stuðnings börnum inn á vefnum heillakedjan.is. Þar er með einföldum hætti hægt að stofna til heillakeðju, velja verkefni til að styrkja og bjóða vinum að taka þátt. Sá einstaklingur eða hópur sem nær að safna mestu fé eða flestum einstaklingum hvern mánuð fær glaðning frá fyrirtæki mánaðarins sem í mars er Lýsi. Það mun standa fyrir ýmsum uppákomum í mánuðinum og safna, með aðstoð viðskiptavina sinna fé til verkefna Barnaheilla – Save the Children á Íslandi í þágu barna.

Samtökin leituðu til tólf íslenskra fyrirtækja og óskuðu eftir því að þau tækju að sér einn mánuð á árinu með aðstoð viðskiptavina sinna. Þann mánuð leggja þau áherslu á réttindi barna og safna fé til styrktar starfsemi Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, mannréttindasamtaka barna. Hvert þeirra mun fara ólíkar leiðir í sínum mánuði en hægt verður að fylgjast með því sem í boði verður á heimasíðu fyrirtækjanna og á facebook-síðu Heillakeðjunnar. Tíu fyrirtæki hafa nú þegar ákveðið að taka þátt í keðjunni;  Blómaval, Ölgerðin, Lýsi, VÍS, N1, Háskólabíó og Smárabíó, Síminn, Aðföng, Icepharma og Eymundsson. Með þátttöku í Heillakeðju barnanna hafa öll þessi fyrirtæki skuldbundið sig til að leggja verkefnum samtakanna lið. 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi leggja áherslu á það hérlendis að standa vörð um réttindi barna, á að efla áhrifamátt þeirra og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja samtökin menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara. 

Börn þurfa á þínum stuðningi að halda – Taktu þátt í Heillakeðju barnanna 2012

Þeir sem vilja styðja starf samtakanna með frjálsum framlögum eða mánaðarlega sem heillavinir, er bent á vef samtakanna, barnaheill.is eða bankareikninginn 0327-26-2535 kt. 521089-1059.