Gegn einelti hringinn í kringum landið á traktorum

Hálfrar aldar gamall draumur tveggja vina verður að veruleika á morgun þegar hringferð þeirra hefst á traktorum í kringum landið. Þeir kalla sig Vini Ferguson og fara hringinn á tveimur Massey Ferguson traktorum, annar þeirra var traktorinn sem þeir unnu á í sveitinni fyrir 50 árum síðan. Lagt verður af stað frá Olísstöðinni í Álfheimum og áætlað að ferðin taki 12-14 daga. Safnað verður fyrir Vináttu – forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti í leikskólum.

VF 2015 copyHálfrar aldar gamall draumur tveggja vina verður að veruleika á morgun þegar hringferð þeirra hefst á traktorum í kringum landið. Þeir kalla sig Vini Ferguson og fara hringinn á tveimur Massey Ferguson traktorum, annar þeirra var traktorinn sem þeir unnu á í sveitinni fyrir 50 árum síðan. Lagt verður af stað frá Olísstöðinni í Álfheimum og áætlað að ferðin taki 12-14 daga. Safnað verður fyrir Vináttu – forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti í leikskólum.

Þeir Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, og Grétar Gústavsson, meistari í bifvélavirkjun og áhugamaður um búvélar og fornbíla, voru saman í sveit á bænum Valdarási frá fimm ára aldri fram á unglingsár og unnu ýmis sveitastörf. Draumurinn kviknaði þegar þeir þeir byrjuðu að vinna á traktornum, sem verður annar fararskjótinn þeirra í ferðinni.

„Það kom aldrei til greina annað en að fara á traktornum okkar, þeim sem við lékum okkur í og unnum á í sveitinni. Massey Ferguson, tegund 35X, árgerð 1963 Enda hefur þessi draumur blundað í okkur í 50 ár og við erum sammála um að maður eigi að láta góða drauma rætast,“ segir Karl.

VF 60 copy„Fyrstu árin vorum við látnir sækja kýr, raka frá og og rifja. Áður en við náðum niður á kúplinguna á traktornum vorum við nýttir til að vinna hin ýmsu störf á þeim. Grétar var nú alltaf meiri vélamaður en ég og var fyrri til. En við náðum vel saman við að vinna á traktorunum og nýta þá okkur til skemmtunar,” segir Grétar.

„Okkur var auðvitað sýnd mikil ábyrgð og leyfðist að ferðast um á vélunum milli bæja og svo notuðum við traktorana okkur til skemmtunar þegar tími gafst til,” segir Karl.

Félagarnir ákváðu að nota tækifærið og leggja góðu málefni lið um leið og þeir létu gamlan draum rætast. Þeir safna áheitum í gegnum símanúmerið 904 1900, fyrir 500 krónur, en ágóðinn rennur til Vináttu – forvarnarverkefnis Barnaheilla gegn einelti í leikskólum. Þangað á einelti gjarnan rætur að rekja og mikilvægt að hefja forvarnir strax þá.

„Við vonum auðvitað að sem flestir hvetji okkur áfram með því að hringja í söfnunarsímanúmerið eða leggja inn á bankareikning Barnaheilla, því samtökin vinna að mörgum þörfum verkefnum í þágu allra barna á Íslandi,“ segir Grétar.

Hægt er að hringj