Gleymda stríðið - 83 börn myrt í Kongó

Átökin í Lýðveldinu Kongó hafa staðið yfir í fjölda ára en nú í maí náðu átökin hámarki í Ituri héraði, í austurhluta landsins, þegar árásarhópurinn CODECO lét til sín taka. Árásir á skóla og heilbrigðisstofnanir hafa átt sér stað, þar á meðal á tvær heilsugæslustöðvar sem reknar eru af Barnaheillum – Save the Children. 83 börn hafa verið myrt af árásarhópnum frá því í apríl, þar af voru 14 börn afhöfðuð með sveðjum og eitt barn brennt lifandi. 17 börn til viðbótar særðust í árásunum. Kynferðisofbeldi gegn börnum hefur einnig aukist gífurlega á svæðinu.

Meira en 300 þúsund manns, börn í meirihluta, hafa flúið átökin í Ituri á þessu ári, sem er eitt fátækasta og óöruggasta svæði landsins. Fólksflutningar þessir hafa sett mikið álag á starf Barnaheilla á svæðinu en erfitt hefur reynst að koma aðstoð og birgðum til flóttafólks.

„Vegna átakanna getum við ekki fylgst almennilega með veikum og vannærðum börnum. Börn eru því að deyja úr hungri,” segir Dr. Macky Manseka, verkefnastjóri mannúðaraðstoðar Save the Children í Kongó.

Meirihluti flóttafólks hefur ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni eða hreinlætisvörum, en mesta útbreiðsla farsótta er í Ituri héraði. Heilbrigðisþjónusta í Ituri héraði er mjög takmörkuð og hafa um 22 heilbrigðisstofnanir verið eyðilagðar í átökunum og þar með hafa stórar birgðir af bóluefni skemmst. Að auki hafa um 160 skólar verið sprengdir upp og eyðilagðir.

Skortur á aðgengi að húsnæði, næringu, heilbrigðisþjónustu og menntun, gerir börn berskjölduð fyrir ofbeldi og misnotkun. ,,Aðstæður barna eru að versna með hverjum deginum. Við verðum að tryggja að þessi börn geti snúið aftur í skólann og að fjölskyldur þeirra geti fengið heilbrigðisþjónustu," segir Malik Allaouna, framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children í Kongó. Átökin í Kongó hafa oft verið kölluð Gleymda stríðið vegna þess hversu takmarkaða fjölmiðlaathygli átökin hafa fengið en í landinu eru meira en 5 milljónir manna á flótta innan landamæranna og 15.6 milljónir manna búa við mikla hungursneyð. Barnaheill hafa starfað í landinu frá árinu 1994 og hafa aðstoðað hundruði þúsunda barna.