Heimilisfriður – Heimsfriður

16_daga_atak_logoYfirskrift 16 daga átaksins gegn kynbundu ofbeldi er í ár „Heimilisfriður – heimsfriður“. Alþjóðlegt þema átaksins er kynbundið ofbeldi í stríði og vopnuðum átökum en jafnframt er beint sjónum að heimilisofbeldi. 16 daga átakið hefst með ljósagöngu 25. nóvember, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum, og lýkur 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadeginum.

16_daga_atak_logoÞetta er í 21. skipti sem staðið er fyrir 16 daga átakinu í heiminum. Kynbundið ofbeldi er ein af verstu birtingarmyndum kynjamisréttis, hér á landi sem og annars staðar. Hundruðir kvenna leita árlega til neyðarmóttöku, Stígamóta og Kvennaathvarfsins vegna ofbeldis af hendi karla. Kynbundið ofbeldi lýsir sér í nauðgunum, sifjaspelli, klámi, vændi, mansali, kynferðislegri áreitni og annars konar líkamlegu og andlegu ofbeldi gegn konum og stúlkum, innan heimilis sem utan.

Samkvæmt upplýsingum frá Kvennaathvarfinu, leituðu 605 konur þangað árið 2009, en frá upphafi hafa 9,410 konur komið í athvarfið. Árið 2010, leituðu 526 einstaklingar til Stígamóta, og frá upphafi starfsemi samtakanna til ársloka 2009 höfðu því alls 4,998 konur leitað til Stígamóta vegna kynferðisofbeldis. Nýjum málum fækkaði á milli áranna 2008 og 2009 en árið 2010 fjölgaði þeim aftur. Í ársskýrslu sinni, vekja Stígamót sérstaka athygli á því að aðeins 16,5% ofbeldis¬mannanna, sem tilgreindir voru árið 2010, eru ókunnugir þeim sem þeir beita ofbeldi. Það þýðir að í rúmum 80% tilvika þekkti brotaþolinn ofbeldismanninn. Íslenskum konum stafar því helst hætta af eiginmanni, fyrrverandi eiginmanni, kærasta, föður, frænda, bróður, vini en ekki af ókunnugum.

Ofbeldi gegn konum viðgengst á Íslandi eins og annars staðar, og það viðgengst hvergi eins vel og innan veggja heimila, í skjóli upplýsingaskorts, þöggunar og aðgerðaleysis. Skömmin, sem réttilega tilheyrir gerendum, hvílir m.a. af þessum sökum sem mara á þolendum. Reynslan frá nágrannalöndum sýnir að kynbundið ofbeldi eykst á krepputímum en almennum líkamsárásum fækkar. Ofbeldi verður minna sjáanlegt en það hverfur ekki, heldur færist inn á heimilin.

Með árlegu 16 daga átaki gefst tækifæri til opinnar og hispurslausrar umræðu meðal almennings og vitundarvakningar um þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að vinda bug á kynbundnu ofbeldi, innan heimilis sem utan. Dagskrá átaksins í ár er fjölbreytt en hana má kynna sér á heimasíðu átaksins og á Facebook-síðu átaksins.