Hjóla­söfn­un Barna­heilla hófst í áttunda sinn í dag

Á myndinni eru f.v.: Sigurbjörg Helga Sigurgeirsdóttir, frá Æskunni, Aðalsteinn Gunnarsson, frá IOGT…
Á myndinni eru f.v.: Sigurbjörg Helga Sigurgeirsdóttir, frá Æskunni, Aðalsteinn Gunnarsson, frá IOGT og umsjónarmaður hjólaviðgerða, Linda Hrönn Þórisdóttir, verkefnisstjóri Hjólasöfnunar hjá Barnaheillum, Erna Tómasdóttir, sem leikur Matthildi í samnefndum söngleik í uppfærslu Borgarleikhússins, Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstrarstjóri Sorpu, Elsa Margrét Þórðardóttir, og Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla.

Hjóla­söfn­un Barna­heilla – Save the Children á Íslandi var hleypt af stokk­un­um um hádegisbil í dag, 15. mars, í Sorpu á Sæv­ar­höfða. Að þessu sinni var það persónan Matthildur úr samnefndu leikriti í uppfærslu Borgarleikhússins sem af­henti fyrstu hjólin í söfnunina. Þrjár ungar leikkonur skipta með sér hlutverki Matthildar og var það Erna Tómasdóttir sem mætti fyrir þeirra hönd. Hún hvatti þannig aðra til að láta gott af sér leiða og koma hjól­um sem ekki eru í notkun til þeirra sem hafa not fyrir þau. Þess má geta að leikritið Matthildur verður einmitt frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld. Barnaheill eru í samstarfi við Borgarleikhúsið vegna leiksýningarinnar sem fjallar meðal annars um ofbeldi og vanrækslu en það hefur verið eitt helsta viðfangsefni Barnaheilla að berjast gegn ofbeldi og vanrækslu á börnum.

Söfn­un­in stend­ur yfir til 23. apríl og hefjast út­hlut­an­ir á hjólum í apríl og standa fram í maí.

Hjól­in verða gef­in börn­um og ung­ling­um sem ekki hafa tök á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt verður að sækja um hjól í gegnum fé­lagsþjón­ustu sveit­ar­fé­lag­a.

Hjól­un­um verður safnað á end­ur­vinnslu­stöðvum Sorpu á Dal­vegi í Kópa­vogi, Breiðhellu í Hafnar­f­irði, Sæv­ar­höfða, Ánanaust­um og Jafn­ar­seli í Reykja­vík og Blíðubakka í Mos­fells­bæ. Sjálfboðaliðar munu gera hjól­in upp und­ir styrkri stjórn sér­fræðinga í reiðhjólaviðgerðum áður en þau verða af­hent. Verkefnið hefur mjög breiða samfélagslega skírskotun þar sem það eflir þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu.

Þetta er í áttunda sinn sem hjóla­söfn­un­in fer fram en hún er unn­in í sam­starfi við Æsk­una barna­hreyf­ingu IOGT, Sorpu og ýmsa aðra velunnara.

Um 1800 börn hafa notið góðs af hjóla­söfn­un Barna­heilla frá því henni var fyrst hrundið af stað árið 2012.

Hægt er að fylgj­ast með verk­efn­inu á Face­book-síðu söfn­un­ar­inn­ar og einnig er hægt að skrá sig þar til þátt­töku í sjálf­boðaliðastarf fyr­ir hjólaviðgerðir.

Nánari upplýsingar veitir Linda Hrönn Þórisdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, linda@barnaheill.is, í síma 821 8758