Hjólasöfnun Barnaheilla hófst í dag

Elsa Margrét Þórðardóttir og Bjartur Bóas Hinriksson, bæði á tíunda ári, tóku við fyrstu hjólunum se…
Elsa Margrét Þórðardóttir og Bjartur Bóas Hinriksson, bæði á tíunda ári, tóku við fyrstu hjólunum sem Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður færði söfnuninni. Þau fengu öll páskaegg að gjöf frá Sorpu.

Hjóla­söfn­un Barna­heilla – Save the Children á Íslandi var hleypt af stokk­un­um um hádegisbil í dag, 23. mars í Sorpu á Sæv­ar­höfða. Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður af­henti fyrstu hjólin í söfn­un­ina og hvatti þannig aðra til að láta gott af sér leiða og koma hjól­um sem ekki eru í notkun til þeirra sem hafa not fyrir þau. Þau Elsa Margrét Þórðardóttir og Bjartur Bóas Hinriksson, bæði á tíunda ári, tóku við fyrstu hjólunum.

Söfn­un­in stend­ur yfir til 10. maí og hefjast út­hlut­an­ir um miðjan apríl.

Hjól­in verða gef­in börn­um og ung­ling­um sem ekki hafa tök á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt er að sækja um hjól hjá félagsþjónustu sveitarfélaga.

Allar end­ur­vinnslu­stöðvar Sorpu á höfuðborgarsvæðinu taka við hjólum. Sjálfboðaliðar munu gera hjól­in upp und­ir styrkri stjórn sér­fræðinga í reiðhjólaviðgerðum áður en þau verða af­hent nýjum eigendum.

Þeir sem vilja aðstoða við hjólaviðgerðir eru beðnir að hafa samband við Aðalstein Gunnarsson í síma 895 5030, eða iogt@iogt.is.

Verkefnið hefur mjög breiða samfélagslega skírskotun þar sem það eflir félagslega þátttöku barna og nú í ár er verkefnið samtvinnað hjólaverkefni Rauða krossins og Hjólafærni þar sem hælisleitendum gefst kostur á að gera upp sín eigin hjól og taka í leiðinni þátt í viðgerðum fyrir Hjólasöfnun Barnaheilla.

Þetta er í sjöunda sinn sem hjóla­söfn­un­in fer fram en hún er unn­in í sam­starfi við Æsk­una barna­hreyf­ingu IOGT, Sorpu, Rauða kross Íslands, Hjólafærni og ýmsa aðra velunnara. Fasteignafélagið Reitir lánar húsnæði undir verkstæði.

Hátt í 1500 börn hafa notið góðs af hjóla­söfn­un Barna­heilla frá því henni var fyrst hrundið af stað árið 2012.

Hægt er að fylgj­ast með verk­efn­inu á Face­book síðu söfn­un­ar­inn­ar og einnig er hægt að skrá sig þar til þátt­töku í sjálf­boðaliðastarf fyr­ir hjólaviðgerðir.