Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi í tíunda sinn

Frá vinstri: Linda Hrönn Þórisdóttir, leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheillum, Harpa Rut Hilmar…
Frá vinstri: Linda Hrönn Þórisdóttir, leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheillum, Harpa Rut Hilmarsdóttir, formaður Barnaheilla, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Elsa Margrét Þórðardóttir sem tók við fyrsta hjólinu fyrir hönd barna, Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstrarstjóri hjá Sorpu, Aðalsteinn Gunnarsson verkstæðisformaður frá Æskunni – IOGT og Matthías Freyr Matthíasson, verkefnisstjóri hjólasöfnunar Barnaheilla

Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi var formlega hleypt af stokkunum í dag föstudaginn 19. mars kl. 11:30 í Sorpu á Sævarhöfða. Að þessu sinni var það landskunna sjónvarpskonan Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sem er m.a. þekkt fyrir stjórnun sjónvarpsþáttarins Með okkar augum sem sýndir eru á RÚV, sem afhenti fyrsta hjólið í söfnunina. Hún hvetur þannig aðra til að láta gott af sér leiða og koma hjólum sem ekki eru í notkun til þeirra sem hafa not fyrir þau.

Söfnunin stendur yfir til 1. maí og hefjast þá úthlutanir á hjólum um miðjan apríl og standa fram í maí.

Hjólin verða gefin börnum og unglingum sem ekki hafa tök á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt verður að sækja um hjól í gegnum félagsþjónustu sveitarfélaga.

Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Sorpu á Dalvegi í Kópavogi, Breiðhellu í Hafnarfirði, Sævarhöfða, Ánanaustum og Jafnarseli í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ. Sjálfboðaliðar munu gera hjólin upp undir styrkri leiðsögn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum áður en þau verða afhent. Verkefnið hefur mjög breiða samfélagslega skírskotun þar sem það eflir þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu.

Þetta er í tíunda sinn sem hjólasöfnunin fer fram en hún er unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT, Sorpu og ýmsa aðra velunnara.

Yfir 2500 börn hafa notið góðs af hjólasöfnun Barnaheilla frá því henni var fyrst hrundið af stað árið 2012. Hægt er að fylgjast með verkefninu á Facebook-síðusöfnunarinnar og einnig er hægt að skrá sig þar til þátttöku í sjálfboðaliðastarf fyrir hjólaviðgerðir.

Nánari upplýsingar veitir Matthías Freyr Matthíasson, verkefnastjóri hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, matti@barnaheill.is, í síma 866 9538.