Hrafn Jökulsson hlýtur viðurkenningu Barnaheilla 2015

Hrafn Jökulsson hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2015. Hrafn er landsþekktur rithöfundur, eldhugi og stofnandi skákfélagsins Hróksins. Áhersla hans á vináttu og á að valdefla börn og styrkja þau félagslega samræmast áherslum Barnaheilla á mannréttindi barna.

Viðurkenning 2015Hrafn Jökulsson hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2015. Hrafn er landsþekktur rithöfundur, eldhugi og stofnandi skákfélagsins Hróksins. Áhersla hans á vináttu og á að valdefla börn og styrkja þau félagslega samræmast áherslum Barnaheilla á mannréttindi barna.

Hrafn og félagar hans í Hróknum hófu „skáklandnám“ á Grænlandi árið 2003 og hafa í rúmlega 40 ferðum kennt grænlenskum börnum skák og gefið þeim gjafir á borð við taflsett, fatnað og aðrar nauðsynjavörur. Sama ár hófu þeir einnig að heimsækja vikulega börn á Barnaspítala Hringsins í þeim tilgangi að tefla við þau. Þá hefur KALAK vinafélag Grænlands og Íslands, þar sem Hrafn situr í stjórn, staðið fyrir því að grænlenskum börnum sé boðið í tveggja vikna ferðir til Íslands til að læra að synda.

DSC_0946Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Barnasáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.

Afhending viðurkenningarinnar fór fram í veislusal veitingastaðarins Nauthóls. Kolbrún Baldursdóttir, formaður Barnaheilla – Save the Children á Íslandi flutti ávarp auk þess sem Herdís og Ingibjörg Kristjánsdætur Linnet, fulltrúar úr ungmennaráði Barnaheilla, ávörpuðu samkomuna og fluttu tónlistaratriði. Einnig fluttu tónlistaratriði Halldór Jakobsson, 15 ára gítarnemi í Listaskóla Mosfellsbæjar, og Saga Matthildur Árnadóttir, sem stundar söngnám við FÍH. Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna stýrði athöfninni.