Jólakort Barnaheilla 2016 komið út

Jólakötturinn Hrafna-Flóki er fyrirmynd Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur, teiknara og rithöfundar, á jólakorti Barnaheilla í ár. Sagan af kettinum Hrafna-Flóka er skemmtileg. Snæfríður, dóttir Kristínar Rögnu, eignaðist hann þegar hún var fimm ára gömul. 

Kristín og Erna með Hrafna-FlókaJólakötturinn Hrafna-Flóki er fyrirmynd Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur, teiknara og rithöfundar, á jólakorti Barnaheilla í ár.
 
Sagan af kettinum Hrafna-Flóka er skemmtileg. Snæfríður, dóttir Kristínar Rögnu, eignaðist hann þegar hún var fimm ára gömul. Hrafna-Flóki var hinn mesti ljúflingur og hrifnæmur, sem lýsti sér meðal annars í því að hann varð strax ástfanginn af hamstrinum Rósu. Allt gekk eins og í sögu á heimilinu, en á jóladag átti hann það hins vegar til að vera með eitthvað vesen. Eitt sinn skreið hann undir bíl fjölskyldunnar þegar þau voru á leið í jólaboð og kom ekki undan honum fyrr en eftir klukkutíma þegar hann þurfti að pissa. Gylliboð um humarsúpu og hvatning fjölskyldumeðlima hafði ekki dugað til. Annað sinn klifraði Hrafna-Flóki upp á verkpall við næsta hús en þorði svo ekki niður. Þá þurfti að fara inn hjá nágrönnunum og klifra út um glugga til að ná í hann.  Í nóvember árið 2014 hvarf hann og var týndur í fimm vikur. Leit fjölskyldunnar bar ekki árangur en hún gaf ekki upp von. Á jóladag fengu þau svo óvænta hringingu. Svartur skógarköttur hafði fundist innilokaður í kjallarageymslu og Hrafna-Flóki kom heill heim fjölskyldunni til mikillar gleði. Hann var hins vegar heldur rýr eftir kjallaradvölina, en langbesta jólagjöfin sem hægt var að hugsa sér. Í dag er Hrafna-Flóki orðinn 12 ára gamall feitur inniköttur sem er kominn á jólakort með friðardúfu á kollinum. Geri aðrir jólakettir betur!
                                                   
Jólakort 2016Sala jólakorta er afar mikilvæg fjáröflunarleið fyrir Barnaheill sem reiða sig alfarið á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Andvirði kortanna rennur til verkefna Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Með því að kaupa jólakort samtakanna styður þú við bakið á öflugu starfi fyrir bættum mannréttindum barna.
 
Jólakortin fást í verslunum Pennans/Eymundsson á höfuðborgarsvæðinu, í A4 og á skrifstofu Barnaheilla að Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík. Þau kosta 300 krónur stykkið, en eldri jólakort eru seld á 250 krónur stykkið. 
Við sendum líka út á land. Hægt er að panta jólakortin í síma 553 5900 eð