#Komment­sens

Höfundar eru Matthías Freyr Matthíasson og Þóra Björnsdóttir, verkefnastjórar innlendra verkefna.
Höfundar eru Matthías Freyr Matthíasson og Þóra Björnsdóttir, verkefnastjórar innlendra verkefna.

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn (Safer Internet Day) er haldinn víða um heim til að vekja athygli á öryggi barna og ungmenna á netinu. Á Íslandi er netöryggisdagurinn skipulagður af SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni).

Í tilefni netöryggisdagsins þann 8. febrúar 2022 hófu Ábendingalína Barnaheilla og SAFT herferð í samstarfi við TikTok undir myllumerkinu #Kommentsens. Fimm ungmenni, fjórtán ára og eldri, unnu að herferðinni með Barnaheillum og skrifuðu handrit fyrir myndbönd sem eru nú í dreifingu á TikTok. Þau tóku einnig þátt í hönnun og gerð herferðarinnar og gáfu henni nafnið #Kommentsens. Ungmennin ákváðu þessa útgáfu af herferðinni þetta árið því þau sjá þörfina á því að hvetja alla til góðra samskipta, nota „common sense“ og að jákvæð skilaboð fái meira vægi.

Markmið herferðarinnar er að hvetja til góðra samskipta á milli barna og unglinga á samfélagsmiðlum og benda þeim á að nota #Kommentsens áður en þau segja eitthvað leiðinlegt við aðra á netinu. #Kommentsens kennir krökkum líka leiðir til að forðast niðrandi ummæli á færslurnar sínar á TikTok og öðrum samfélagsmiðlum.

Ljóst er að með aukinni netnotkun og tilkomu þess að geta skrifað athugasemdir við hinar ýmsu færslur, eða kommentakerfi, hefur notkun ljótra og meiðandi orða og skoðana orðið sýnilegri. Nauðsynlegt er að samfélagið allt taki höndum saman um að stemma stigu við slíkum samskiptum og því fyrr því betra. Internetið getur verið stórkostleg viðbót við líf fólks og hefur opnað fyrir óteljandi möguleika til lærdóms, skemmtunar, fræðslu og aukinnar víðsýni. Internetið og samfélagsmiðlar hafa hins vegar líka sínar slæmu hliðar og því er nauðsynlegt að fullorðnir einstaklingar í lífi barna fylgist með netnotkun og samfélagsmiðlanotkun barna og ungmenna og leiðbeini þeim hvernig hægt sé að nýta þennan vettvang með jákvæðum og uppbyggjandi hætti. Á flestum samfélagsmiðlum er 13 ára aldurstakmark og mikilvægt er að foreldrar virði það. Einnig er mikilvægt að fullorðnir séu fyrirmyndir og sýni í verki hvernig nýta megi internetið á jákvæðan máta. Með því að stuðla að öruggu interneti fyrir alla, erum við að gefa öllum færi á að taka þátt í því samfélagi sem myndast hefur í gegnum internetið.

Verðir þú var við ólöglegt og/eða óæskilegt efni á netinu sem varðar börn eða beinist gegn börnum og ungmennum undir 18 ára aldri bendum við á Ábendingalínu Barnaheilla á vefsvæðinuwww.barnaheill.isTákn hennar er strokleður sem er efst, hægra megin á síðunni. Allar tilkynningar sem til hennar berast eru skoðaðar og rannsakaðar af lögreglu sem rekur slóðir efnisins, finnur það og sér til þess að það sé fjarlægt. Barnaheill vinna að bættum réttindum barna og hvetja samfélagið allt til að standa saman um að tryggja jákvæðari samskipti – líka á samfélagsmiðlum. Það er #Kommentsens.

Matthías Freyr Matthíasson er verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi. Þóra Björnsdóttir er verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.

 

Frétt birtist á Vísi.is þann 10 . febrúar