Lögregluyfirvöld í Evrópu gefa út viðvörun vegna ofbeldisglæpa gagnvart börnum á netinu

Stafrænar þvingunaraðgerðir, blekkingar, hótanir og kúganir gagnvart börnum og ungmennum hafa aukist mjög á síðustu árum. Europol hefur gefið út viðvörun og hafið herferð vegna þessa og birt leiðbeiningar um hvernig beri að bregðast við, en mál af þessu tagi eru sjaldan tilkynnt til lögreglu.

Stafrænar þvingunaraðgerðir, blekkingar, hótanir og kúganir gagnvart börnum og ungmennum hafa aukist mjög á síðustu árum. Europol hefur gefið út viðvörun og hafið herferð vegna þessa og birt leiðbeiningar um hvernig beri að bregðast við, en mál af þessu tagi eru sjaldan tilkynnt til lögreglu. Í flestum tilfellum er um að ræða þvinganir sem fela í sér að börn og ungmenni eru hvött til að senda af sér kynferðislegar myndir en svo krafin um greiðslu gegn loforði um að þær verði ekki birtar opinberlega.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi reka ábendingalínu í samvinnu við ríkislögreglustjóra þar sem hægt er að tilkynna um slík mál en einnig er hægt að tilkynna beint til lögreglu.

Í nýrri skýrslu frá Europol kemur fram að börn allt niður í sjö ára aldur verði fórnarlömb þessara glæpa.

Tvær aðalástæður eru fyrir því að gerandi sækir í börn:

  • Hann/hún hefur kynferðislegan áhuga á börnum og ungmennum þar sem markmiðið með kúguninni er að fá kynferðislegt efni (myndir og/eða myndskeið sem sýna barnið á kynferðislegan hátt)
  • Hagnaðarvon þar sem markmiðið er að græða fjárhagslega á kúguninni.

Aðferðir

Girl storyÍ skýrslunni kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá CyperTipline, bandarískri miðstöð fyrir týnd og misnotuð börn, séu stúlkur í meirihluta barna sem beitt eru kynferðislegum kúgunum. Drengir eru hins vegar útsettari fyrir því að vera beittir fjárkúgunum á netinu, sem er tiltölulega nýtt form stafræns kynferðisofbeldis. Hins vegar er nýrri aðferð beitt í auknum mæli - að krefja fórnarlömbin um að fá önnur börn til þátttöku í myndum og myndskeiðum, svo sem systkini eða vini. Í slíkum tilfellum, eru börn sem annars temja sér örugga netnotkun útsett fyrir því að verða fórnarlömb kynferðisofbeldis og kúgana á netinu.

Veita þarf athygli þeim sálræna skaða sem fórnarlömbin verða fyrir. Tilkynnt hefur verið um fjölda barna sem hafa framið sjálfsmorð á síðustu árum eftir að hafa orðið fórnarlömb internetkúgana. Fjöldi mála á netinu þar sem börn eru beitt kynferðisþvingunum og fjárkúgunum koma aldrei fram þar sem börnin upplifa mikla skömm og vanlíðan vegna efnisins sem þau afhentu glæpamanninum.

#Segðu nei!

Sem andsvar við þessari alvarlegu þróun hefur herferðinni #Say NO!, eða #Segðu Nei!, verið hrint af stað. Europol styður herferðina sem rétt