Nýliðun í stjórn Barnaheilla

Á aðalfundi Barnaheilla – Save the Children á Íslandi þriðjudaginn 12. maí síðastliðinn, tóku þrír nýir stjórnarmenn sæti í stjórn, þeir Már Másson, Ólafur Guðmundsson og Bjarni Karlsson

Stjorn 2015Á aðalfundi Barnaheilla – Save the Children á Íslandi þriðjudaginn 12. maí síðastliðinn, tóku þrír nýir stjórnarmenn sæti í stjórn, þeir Már Másson, Ólafur Guðmundsson og Bjarni Karlsson.

Í stjórn sitja fyrir Kolbrún Baldursdóttir, formaður, Sigríður Olgeirsdóttir, varaformaður, María Sólbergsdóttir, Þórarinn Eldjárn, Helga Sverrisdóttir, Guðrún Kristinsdóttir og Gunnar Hrafn Jónsson. Barnaheill- Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem stofnuð voru árið 1989. Þau eiga aðild að Save the Children International en að þeim standa 30 landsfélög sem starfa í 120 löndum. Samtökin hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í öllu sínu starfi og eru helstu áherslur barátta gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að rödd barna heyrist betur í íslensku samfélagi.

Á myndinni eru frá vinstri: Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri, Þórarinn Eldjárn, Már Másson, Helga Sverrisdóttir, Ólafur Guðmundsson, Kolbrún Baldursdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, María Sólbergsdóttir og Bjarni Karlsson. Á myndina vantar Gunnar Hrafn Jónsson og Sigríði Olgeirsdóttur.