Ofbeldi á börnum á átakasvæðum hefur ekki verið meira frá því að skráningar hófust

Maher*, 8, Idlib, Sýrlandi
Maher slasaðist á fæti og maga í sprengjuárás á húsið hans. Fjölskylda h…
Maher*, 8, Idlib, Sýrlandi
Maher slasaðist á fæti og maga í sprengjuárás á húsið hans. Fjölskylda hans lagðist á flótta eftir árásina og býr núna í flóttamannabúðum í Idlib, Sýrlandi.

Stríðs- og átakasvæði eru að verða sífellt hættulegri fyrir börn samkvæmt árlegri skýrslu Stop the War on Children 2020: Gender Matters sem Barnaheill - Save the Children sendu frá sér á dögunum. Samkvæmt skýrslunni hefur ofbeldi gegn börnum á átakasvæðum aldrei verið meira frá því að skráningar hófust. Um 415 milljónir barna búa-á átakasvæðum, þar af 149 milljónir þar sem mikil átök eiga sér stað. Líkurnar eru mun meiri nú en áður á að börn sem búa á átakasvæðum séu drepin, limlest eða kynferðislega misnotuð.

Skýrslan var birt í tengslum við öryggisráðstefnuna sem haldin er í Munchen um helgina, dagana 14. – 19. febrúar, þar sem leiðtogar heims koma saman til að ræða alþjóðleg öryggismál. Skýrslan inniheldur m.a. kerfisbundna greiningu á því hvernig alvarlegt ofbeldi á börnum á átakasvæðum hefur ólík áhrif á stúlkur og drengi.

Stúlkur verða fyrir töluvert meira kynferðisofbeldi á átakasvæðum en drengir, en níu af hverjum tíu börnum sem beitt eru kynferðisofbeldi eru stúlkur, en aðeins 1,5% drengir. Í 11% tilvika var kyn ekki skráð. Sómalía og Lýðveldið Kongó eru hættulegustu svæðin fyrir stúlkur.

Fjöldi barna sem eru drepin eða særð á átakasvæðum hækkar með hverju árinu. Drengir eru mun líklegri til þess að verða drepnir eða limlestir en af  öllum staðfestum tilvikum um dráp og limlestingar voru drengir í 44% tilfella, stúlkur í 17% tilfella en í 39% tilfella var kyn ekki skráð.

Barnaheill - Save the Children telja að eina leiðin til að stöðva stríð gegn börnum sé að ríkisstjórnir og aðrir aðilar hrindi í framkvæmd aðgerðaáætlunum til að takast á við þjáningar barna. Einnig er nauðsynlegt að framlög verði aukin en Inger Ashing framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka Save the Children segir nauðsynlegt að auka fjárframlög til þess að binda enda á þjáningar barna.

Skýrslan sýnir að stríð og átök séu að verða hættulegri börnum. Börn sem búa á átakasvæðum eiga í mun meiri hættu á að verða drepin, limlest, ráðin af vopnuðum hópum eða misnotuð kynferðislega. Það er ótrúlegt að heimurinn standi hjá á meðan börnum er ógnað. Síðan 2005 hafa að minnsta kosti 95,000 börn verið drepin, tugþúsundum barna rænt og milljónum barna verið neitað um aðgengi að menntun eða heilbrigðisþjónustu. Greining okkar sýnir að drengir og stúlkur á átakasvæðum þjást með ólíkum hætti og til að  mæta sérstökum þörfum þeirra er nauðsynlegt að auka fjárframlög til þess að veita þeim hjálp og endurreisa framtíð þeirra.