Sýningin Óskir íslenskra barna á Húsavík

Farandsýningin Óskir íslenskra barna opnaði í síðustu viku í Safnahúsinu á Húsavík.

harður copyÍ síðustu viku opnaði ljósmyndasýningin Óskir íslenskra barna í Safnahúsinu á Húsavík. Þetta er sjötti sýningarstaðurinn sem sýningin er á, en áður var hún uppi í Smáralind, Gerðubergi, Árborg, Hvolsvelli og Reykjanesbæ.

Farandsýningin er gjöf Barnaheilla – Save the Children á Ísland og ljósmyndarans Ástu Kristjánsdóttur til barna á Íslandi í tilefni 25 ára afmælis barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Inntak sýningarinnar byggir á sönnum reynslusögum barna sem hafa upplifað ofbeldi, vanrækslu, einelti eða hafa búið við fátækt. Myndirnar birta ímyndaðar óskir þessara sömu barna. Þannig er áhersla lögð á að börn sem upplifa áföll og erfiðleika þurfa að fá að eiga sér ósk og von um að líða einhvern tímann betur.

Sýningin samanstendur af ljósmyndum Ástu, texta úr Barnasáttmálanum og óskatré, þar sem hægt er að koma fyrir óskum barna. Steinunn Hauksdóttir sá um uppsetningu, búninga og gerð óskatrésins. Foreldrar eru hvattir til að aðstoða börnin við að skoða sýninguna og að skrifa óskir sínar á miða. Gjarnan má hvetja barnið til að óska sér einhvers sem því hugkvæmist við að skoða sýninguna.

Öll börn eiga rétt á vernd gegn ofbeldi og þau eiga rétt á að njóta umönnunar. Ef þú veist um barn sem býr við ofbeldi, vanrækslu eða verulegan skort á nauðsynjum skaltu tilkynna það til barnaverndar eða í 112.

Einnig eru upplýsingar inni á www.verndumborn.is.

Ásta Kristjánsdóttir á langan feril að baki sem ljósmyndari og starfar í dag í Reykjavík. Í myndum sínum leitast hún gjarnan við að senda skilaboð til áhorfandans sem endurspegla sýn hennar á samfélagið.