„Öll stríð eru háð gegn börnum“

Þessi litla stúlka er átta mánaða. Hún býr með fjölskyldu sinni í Bait Al-Faqih hverfinu í Hodeidah …
Þessi litla stúlka er átta mánaða. Hún býr með fjölskyldu sinni í Bait Al-Faqih hverfinu í Hodeidah í Jemen og er yngst fjögurra systkina. Stúlkan þjáist af alvarvegri vannæringu þar sem foreldrarnir hafa ekki lengur ráð á að kaupa mat handa fjölskyldunni vegna stríðsins. Móðir hennar tók á það ráð að fara með hana á heilsugæslustöð sem styrkt er af Barnaheillum – Save the Children. Þar fær hún sérstaka næringu og nú á batavegi. Ljósmynd: Mohammed Awadh / Save the Children

Barnaheill – Save the Children fagna nýarsávarpi páfa þar sem hann biður börnum sem búa við stríðsástand vægðar. Eglantyne Jebb, stofnandi Barnaheilla – Save the Children, sagði fyrir hundrað árum: „Öll stríð, hvort sem þau eru réttmæt eða ekki, töpuð eða unnin, eru háð gegn börnum.“

Þessi orð eru jafn sönn nú og fyrir einni öld síðan. Að minnsta kosti eitt af hverjum sex börnum heims búa á svæðum þar sem átök geisa. Yfir 4,5 milljónir þeirra eru á barmi hungursneyðar. Í Jemen áætla samtökin að um 85 þúsund börn undir fimm ára aldri hafi dáið úr hungri frá 2015.

Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi: „Ekkert barn ætti að vera fórnarlamb, ofbeldis, ótta eða áfalla. Hundrað árum eftir lok fyrri heimsstyrjaldar eru grundvallarmannréttindi og lög sem eiga að vernda börn gegn hörmulegum afleiðingum stríðsátaka stanslaust brotin og án nokkurra refsinga.

Nú þegar nýtt ár gengur í garð verða ríkisstjórnir um allan heim að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að binda enda á þetta óásættanlega ofbeldi og færa milljónum barna sem þjást vegna stíðsátaka von.

Afar mikilvægt er að vernda börn fyrir skaða, tryggja öryggi skóla og sjúkrahúsa og að hver barn sem býr við stríðsástand og átök fái nauðsynlegan stuðning og hjálp til að endurreisa framtíð sína.“