Ríflega 800 börn bætast við dag hvern í flóttamannabúðir í Keníu vegna vaxandi þurrka í Sómalíu

RS31349_KENYA2011_NUTRITION_OUTREACH-13_minniRíflega átta hundruð börn flýja dag hvern skelfilegan þurrk í Sómalíu og öðrum landshlutum í Austur-Afríku. Þau leita skjóls í Dadaab-flóttamannabúðunum í norðausturhluta Keníu. Starfsmenn Barnaheilla – Save the Children í búðunum segja börnin sem koma frá Sómalíu vera aðframkomin, vannærð og skorta vökva.

RS31349_KENYA2011_NUTRITION_OUTREACH-13_minni
Börn og foreldrar bíða eftir matarpökkum frá Barnaheillum - Save the Children í Kanjara í Keníu. Ljósmynd: Colin Crowley/Save the Children International.

Ríflega átta hundruð börn flýja dag hvern skelfilegan þurrk í Sómalíu og öðrum landshlutum í Austur-Afríku. Þau leita skjóls í Dadaab-flóttamannabúðunum í norðausturhluta Keníu. Starfsmenn Barnaheilla – Save the Children í búðunum segja börnin sem koma frá Sómalíu vera aðframkomin, vannærð og skorta vökva.

Samtökin hafa sett af stað neyðaraðstoð á svæðinu til að hjálpa börnum í hættu vegna þurrkanna í Austur-Afríku, en þetta eru verstu þurrkar á þessu svæði í áratugi. Þurrkarnir og gríðarlega hátt matvælaverð leggja líf þúsunda barna og annarra í Sómalíu, Keníu og Eþíópíu í mikla hættu vegna vannæringar. Neyðaraðstoðin felst m.a. í því að veita vannærðum börnum meðferð, útvega matvæli og vatn til berskjaldaðra samfélaga og reyna að hjálpa fólki að takast á við æ meiri þurrka af völdum loftslagsbreytinga.

20 þúsundir manna hafa komið til Dadaab-búðanna á síðustu tveimur vikur, sem er mikil fjölgun frá meðaltalinu á síðasta ára, 4-6 þúsundir flóttamanna á mánuði. Um tveir þriðju þeirra sem koma eru börn, ef marka má tölur frá Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna.

„Það eru um 1300 manns sem koma á hverjum degi til Dadaab-búðanna og ástand sumra er skelfilegt,“ segir Catherine Fitzgibbon, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children í Keníu. „Aðstæður barna á þessum ferðum hafa verið ógnvekjandi, þau hafa oft misst fjölskyldur sínar á leiðinni og koma í búðirnar í mikilli þörf fyrir öryggi, heilbrigðisþjónustu og eðlilegt líf. Nær hvert einasta barn eða foreldri sem við höfum rætt við, hafa greint okkur frá því að þau séu ekki bara að flýja átökin í Sómalíu, þurrkarnir og matvælaskorturinn eru þeim jafn skeinuhættir nú.“

Sumar fjölskyldnanna, sem hrakist hafa frá heimkynnum sínum vegna þurrka og matarskorts, segjast hafa gengið í ríflega mánuð í gegnum sandauðnir og í brennandi hita í leit að mat, vatni og skjóli. Margar þeirra urðu að skilja við sig þær litlu eignir sem lagt var upp með. 

Fatuma er fjögurra barna móðir. Hún og fjölskylda hennar voru sex vikur að gang