Ríkisstjórnin veitir 7 milljónum króna til neyðarstarfs Barnaheilla í Írak

Ríkisstjórnin samþykkti í dag að veita allt að 300 milljónum króna til neyðar- og mannúðaraðstoðar og uppbyggingarstarfs í Írak. Þar af verður 100 milljónum varið til neyðar- og mannúðaraðstoðar, en allt að 200 milljónum il uppbyggingarstarfs í kjölfar átaka. Barnaheill, Save the Children á Íslandi, fá nú 7 milljónir króna til neyðarstarfs samtakanna sem er umfangsmikið.

Meginmarkmiðið með neyðaraðstoðinni í Írak er að halda dánartíðni barna í lágmarki og draga úr sýkingarhættu, svo og að draga úr skaðlegum áhrifum stríðsins á líf og almenna velferð barnanna.
Samtökin Save the Children hafa starfað í Írak síðan 1991 og eru með stærstu og reyndustu alþjóðasamtökum sem starfa í landinu. Samtökin eru vel í stakk búin til að takast á við neyðaraðstoð við börn og fjölskyldur þeirra, með starfsemi sinni í Jórdaníu, Kúveit, Íran og Norður-Írak.