Skrifstofa Barnaheilla lokar tímabundið og námskeiðum aflýst

Vegna fjölgunar kórónuveirutilfella og hertari aðgerða stjórnvalda fylgjum við tilmælum Almannavarna og verður skrifstofa Barnaheilla lokuð tímabundið frá og með 7. október. Starfsemin mun þó að sjálfsögðu halda áfram og verður hægt að ná í okkur símleiðis í síma 553-5900 eða senda tölvupóst á netfangið barnaheill@barnaheill.is eða radgjof@barnaheill.is

Fyrir þá sem eiga ósóttar pantanir hjá okkur, þá má hafa samband við okkur og við finnum út úr því hvernig best er að koma henni áleiðis. Eins falla öll námskeið niður sem til stóð að halda í Fákafeni 9 næstu tvær vikurnar.