Sunnanverð Afríka enn í rúst ári eftir að fellibylurinn Idai reið yfir

Bráðabirgðakennslustofa sem Barnaheill - Save the Children settu upp í Sofala héraði í Mozambique í …
Bráðabirgðakennslustofa sem Barnaheill - Save the Children settu upp í Sofala héraði í Mozambique í kjölfar fellibyljarins Idai.

Alþjóðlegar hjálparstofnanir á borð við Save the Children, CARE international og Oxfam telja að án fjármögnunar og aðgerða í loftslagsmálum sé ómögulegt að takmarka áhrif loftslagsbreytinga sem hafa sérstaklega slæm áhrif á þau ríki sem eru viðkæmust fyrir. Áhrif loftslagsbreytinga virðast vera að aukast og er nauðsynlegt að koma á metnaðarfullum aðgerðum, þar sem lofslagsbreytingar á borð við fellibylinn Idai eru að verða æ tíðari og alvarlegri í heimimum.

Hitastig í sunnanverðri Afríku hefur farið hækkandi, en hækkunin er tvöfalt meiri en meðaltalið í heiminum. Fjöldi ríkja í sunnanverðri álfunni hefur orðið fyrir alvarlegum náttúruhamförum á síðastliðnu ári og um 16,7 milljónir manna búa við verulegt fæðuóöryggi. Áætlað er að í Mósambík séu um tvær milljónir manna án aðgangs að mat til að mæta viðunandi matarþörf, en ástandið versnaði til muna eftir að fellibylurinn herjaði á landið.

Idai kom á land þann 14. mars 2019 og hófst um leið alþjóðlegt átak til þess að bregðast við afleiðingum fellibylsins. Þrátt fyrir sterkan hljómgrunn innan alþjóðasamfélagsins náðist einungis að fjármagna innan við helming viðbragðsáætlunarinnar og þurftu hjálparsamtök því að forgangsraða brýnustu þörfum samfélagsins eða gera langtímaáætlanir til þess að koma í veg fyrir að slíkar hamfarir hefðu jafn slæm áhrif í framtíðinni. Fleiri náttúruhamfarir á borð við miklar rigningar og flóð hafa haft slæm áhrif á líf fjölda fólks og t.a.m skemmdust 4.176 bráðabirgðaskýli vegna flóða í desember síðastliðnum. Nærri 700.000 hektarar af ræktunarlandi skemmdust í fellibylnum, þar sem ræktaður var maís, baunir og hrísgrjón og er áætlað að fellibylurinn hafi kostað Mósambík 141 milljónir dala í landbúnaðartapi. Erfitt hefur reynst að byggja upp sum svæði og ekki hefur enn verið hægt að endurrækta landbúnaðarsvæði vegna flóða og rigninga.

Álagið á konur og börn jókst gífurlega eftir fellibylinn og urðu dagleg störf þeirra meiri en áður. Vegalendir til þess að sækja vatn og eldivið urðu lengri og meiri þörf var á að sinna öldruðum og veikum fjölskyldumeðlimum. Einnig var fjöldi barna aðskilin frá fjölskyldum sínum og urðu þau útsettari fyrir misnotkun.

Chance Briggs, verkefnastjóri Barnaheilla - Save the Children í Mósambík segir að ástandið sé alvarlegt og að börn séu að líða fyrir eitthvað sem þau áttu engan þátt í.

Loftslagsbreytingar eru kreppa milli kynslóða sem hefur áhrif á börn í dag og í framtíðinni. Það eru börnin sem minnst hafa haft áhrif á hvernig loftslagsmálum er háttað í dag, en samt eru þau að borga hæsta verðið. Við köllum eftir auknu fjármagni til að draga úr alvarlegum áhrifum loftlagsbreytinga og til að tryggja líf og framtíð barnanna.