Þorgrímur Þráinsson hlýtur viðurkenningu Barnaheilla 2016

Þorgrímur Þráinsson hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2016. Þorgrímur er landsþekktur rithöfundur og hefur um langt skeið verið börnum góð fyrirmynd með jákvæðri afstöðu sinni til lífsins, heilbrigðu líferni og drifkrafti. 

IMG_0483 1000Þorgrímur Þráinsson hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2016. Þorgrímur er landsþekktur rithöfundur og hefur um langt skeið verið börnum góð fyrirmynd með jákvæðri afstöðu sinni til lífsins, heilbrigðu líferni og drifkrafti. Bækur hans, sem nú telja 23, þekkja velflestir íslenskir krakkar. Þær innihalda jákvæðan boðskap og andlega nærandi skilaboð og eru þannig hvatning til yndislestrar. Auk ritstarfa hefur Þorgrímur unnið ötullega að lýðheilsumálum og forvörnum og er góð fyrirmynd. Hann hefur meðal annars heimsótt skóla um allt land til að hvetja börn til að lifa heilbrigðu og skemmtilegu lífi. Þá hefur hann gegnt ýmsum hlutverkum í forvarnarmálum, meðal annars sem framkvæmdastjóri Tóbaksvarnarnefndar og nú síðast með þátttöku við gerð nýrrar lýðheilsustefnu og aðgerðaráætlunar á vegum ráðherranefndar um lýðheilsu.

Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Barnasáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi Barnaheilla.

Afhending viðurkenningarinnar fór fram í veislusal veitingastaðarins Nauthóls. Kolbrún Baldursdóttir, formaður Barnaheilla, flutti ávarp og tilkynnti um viðurkenningahafann, sem steig í pontu og sagði nokkur orð. Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og talsmaður barna á Alþingi, flutti ávarp í tilefni af Degi mannréttinda barna. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heiðraði samkomuna með nærveru sinni og hélt einnig ræðu. Tónlistaratriði voru í boði Herdísar og Ingibjargar Kristjánsdætra Linnet og Gunnars Ágústssonar, fulltrúum úr ungmennaráði Barnaheilla sem einnig ávörpuðu samkomuna. Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna stýrði athöfninni.