Umi fékk hjálp

Umi og móðir hnnar Það er erfitt að gera sér í hugarlund þá þjáningu sem milljónir manna standa frammi fyrir á þurrkasvæðunum í Austur –Afríku. Vatnsskortur,  uppskerubrestur, dauði búfénaðs, matarskortur og hækkað matvælaverð. Þúsundir fjölskyldna sem höfðu lítið handanna á milli í stríðshrjáðri Sómalíu og í bláfátækum héruðum Keníu og Eþíópíu hafa misst lifibrauð sitt og horfa upp á alvarlega vannæringu og jafnvel dauða barna sinna. Örvæntingin er mikil og fátt til ráða. Í Sómalíu þarf nú einn af hverjum þremur íbúum á neyðaraðstoð að halda. Flóttamannahjálp Sþ hefur lýst því yfir að engin leið sé að aðstoða þann gríðarlega fjölda flóttamanna sem nú streymir yfir landamærin frá Sómalíu til flóttamannabúða í Keníu.

Umi og móðir hnnarÞað er erfitt að gera sér í hugarlund þá þjáningu sem milljónir manna standa frammi fyrir á þurrkasvæðunum í Austur –Afríku. Vatnsskortur,  uppskerubrestur, dauði búfénaðs, matarskortur og hækkað matvælaverð. Þúsundir fjölskyldna sem höfðu lítið handanna á milli í stríðshrjáðri Sómalíu og í bláfátækum héruðum Keníu og Eþíópíu hafa misst lifibrauð sitt og horfa upp á alvarlega vannæringu og jafnvel dauða barna sinna. Örvæntingin er mikil og fátt til ráða. Í Sómalíu þarf nú einn af hverjum þremur íbúum á neyðaraðstoð að halda. Flóttamannahjálp Sþ hefur lýst því yfir að engin leið sé að aðstoða þann gríðarlega fjölda flóttamanna sem nú streymir yfir landamærin frá Sómalíu til flóttamannabúða í Keníu.

Eina vonin er aðstoð alþjóðlegra hjálparsamtaka og stofnanna. Barnaheill – Save the Children hafa starfað í Eþíópíu, Keníu og Sómalíu í 20 ár og hafa mikla reynslu af hjálparstarfi á svæðunum. Með aðstoð þeirra fá nú tugþúsundir barna og fjölskyldna aðstoð. Á komandi mánuðum stefnum við á að hjálpa 1,8 milljón barna og fjölskyldna þeirra. Hjálpin felst í dreifingu matvæla, að veita fólki aðgang að hreinu vatni, hreinlætisaðstöðu og heilsugæslu og  að meðhöndla vannærð börn og bæta næringarástand þeirra. Jafnfram aðstoðum við fjölskyldur við framfærslu og að koma undir sig fótum að nýju og veitum börnum vernd og aðgang að menntun. Einnig leggja samtökin áherslu á að gera fjölskyldum kleift að verjast áföllum í framtíðinni.

Umi, þriggja mánaða gömul, er ein þeirra sem fékk hjálp frá Barnaheillum – Save the Children. Amina móðir hennar kom með hana til einnar af næringarstöðvum samtakanna í Sómalíu eftir erfitt ferðalag. Umi, sem vó aðeins 1,7 kg, var alvarlega vannærð og með lungnabólgu. Hún fékk strax viðeigandi aðstoð og var komið undir læknishendur. Við vonum að hún lifi af.

Með þínu framlagi geta Barnaheill – Save the Children hjálpað mun fleiri börnum sem eru í svipaðri stöðu og Umi.  Söfnunarsímar okkar eru 904 1900 (1900 kr.) og 904 2900 (2900 kr.). Hægt er að leggja frjáls framlög á reikning samtakanna 0327 - 26 – 001989, kt. 521089-1059.