Ungmenni funduðu með menntamálaráðherra

Ungmennaráð Barnaheilla átti í gær fund með Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra ásamt fulltrúum frá ráðgjafarhópi umboðsmanns barna og ungmennaráði UNICEF. Menntamál voru til umræðu og helstu málefni sem snúa að ungmennum vegna þeirra.

IMG_1953_500x375Ungmennaráð Barnaheilla átti í gær fund með Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra ásamt fulltrúum frá ráðgjafarhópi umboðsmanns barna og ungmennaráði UNICEF. Menntamál voru til umræðu og helstu málefni sem snúa að ungmennum vegna þeirra. Fundurinn fór fram á skrifstofu umboðsmanns barna þar sem 11 ungmenni á aldrinum 14-18 ára tóku þátt.

Meðal þeirra sem töluðu var Brynhildur Kristín Ásgeirsdóttir og Lilja Reykdal Snorradóttir sem sitja í ungmennaráði Barnaheilla. Brynhildur talaði um rétt barna til að hafa áhrif á öll mál sem þau varða, ekki síst menntamál og Lilja um skólamat og mikilvægi þess að tryggja að öll börn fái holla og góða næringu án tillits til efnahags.

Auk þeirra töluðu Kristján Helgason um mikilvægi menntamála fyrir börn og ungmenni,  Inga Huld Ármann un kennaramat og mikilvægi aukinna áhrifa nemenda í skólanum, Sara Mansour um lífsleiknitíma og hagnýtt nám, Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir um að börn þurfi meiri fræðslu um það sem er að gerast í samfélaginu, Einar Freyr Bergsson um kennslu á lýðræði og að auka áhuga barna og ungmenna á stjórnmálum, Lilja Hrönn Önnu-Hrannarsdóttir um réttindafræðslu og fræðslu um minnihlutahópa og Þorbjörg Arna Jónasdóttir um íþrótta- og sundkennslu og þörfina á auknu tilliti til  fjölbreytileika nemenda. María Fema Wathne talaðu um nauðsyn náms við hæfi og tillit til mismunandi getu og þarfir og Anna Ólöf Jansdóttir um mismunandi kröfur grunnskóla til nemenda og inntökupróf í framhaldsskóla sem mögulega lausn til að jafna stöðu nemenda.

IMG_1958_544x408Fundurinn var afar vel heppnaður og ráðherra tók undir margt af því sem kom fram. Hann óskaði jafnframt sérstaklega eftir því að fá að funda aftur með hópnum í haust. Fulltrúar ungmennaráðanna þökkuðu fyrir þetta tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og sögðust jafnframt vonast til þess að ráðherra leitaði oftar eftir sjónarmiðum barna og ungmenna áður en ákvarðanir um menntamál væru teknar.