Utanríkisráðuneytið veitir Barnaheillum ? Save the Children á Íslandi 10 milljónir króna til uppbyggingarstarfs í Norður-Úganda

_MG_0811Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa fengið 10 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader og Agogo-héruðum í Norður-Úganda. Sérstök áhersla er lögð á menntun, heilsu og vernd barna.

_MG_0811Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa fengið 10 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu fyrir menntunar- og uppbyggingastarf sitt í Pader og Agogo-héruðum í Norður-Úganda. Sérstök áhersla er lögð á menntun, heilsu og vernd barna.

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hófu stuðning og þátttöku við uppbyggingu menntunarstarfs í Norður–Úganda í lok árs 2007. Styrkurinn nú mun tryggja áframhaldandi aðstoð við börn og fjölskyldur sem eru að snúa til heimkynna sinna eftir langvarandi stríðsátök á svæðinu. Sérstök áhersla er á menntun, heilsu og vernd barna, ekki síst stúlkna.

Menntunarverkefnið byggir á samþættri nálgun og miðar að því að veita 30 þúsund börnum í Pader- og Agago-héruðum stuðning við að komast í skóla og fá góða menntun í heilbrigðu, verndandi og barnvænu umhverfi. Því er einnig ætlað að styrkja aðgerðir stjórnvalda í samræmi við PRDP (e. Peace Recovery and Development Plan) vegna grunnmenntunar, heilsugæslu og verndar stúlkna og drengja á svæðinu. Þá er verkefnið í samræmi við aðgerðaplan stjórnvalda um gæði menntunar (e. Quality Education Initiative). Frá árinu 2007 hafa Barnaheill – Save the Children á Íslandi lagt um 53 milljónir króna til verkefnsins, þar af hafa 32,5 milljónir komið frá utanríkisráðuneytinu.

Barnaheill – Save the Children í Úganda hafa starfað í landinu frá 1990 og þekkja því vel til allra aðstæðna. Samtökin vinna náið með stjórnvöldum og heimamönnum. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og öfluga forystu. Barnaheill –Save the Children  á Íslandi eru í beinu og milliliðalausu sambandi við samstarfsaðila sína í Norður- Úganda og fá sendar skýrslur um framgang verkefnisins árlega.