Velferð barna er forgangsmál

haus-facebookBarnaheill – Save the Children á Íslandi efna til uppákoma í dag í samstarfi við leik- og grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, SÍF og Sérsveitina, Stúdentaráð Háskóla Íslands, heilsugæslur og Barnaspítala Hringsins í tengslum við dag barnsins. Þessum uppákomum er ætlað minna á stöðu barna hér á landi og erlendis með myndrænum hætti. Sama dag verður árlegu heillavinaátaki samtakanna ýtt úr vör en heillavinir styðja starf samtakanna með föstum mánaðarlegum framlögum.

Rauðar blöðrur verða í forgrunni á miðvikudaginn. Fjölmargir leikskólar á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í uppákomunum. Börn á leikskólum í Seljahverfi ætla að hittast við tjörn í hverfinu til að minnast barna sem eiga um sárt að binda og á leikskólanum Furuborg ætla nemendur t.a.m. að hengja rauðar blöðrur á tré á skólalóðinni og tileinka það börnum á gossvæðinu sem ekki geta leikið sér úti.  Barnaheill – Save the Children á Íslandi telja afar brýnt að tryggja velferð þeirra barna og fjölskyldna sem búa á gossvæðunum. Börn eru ávallt viðkvæmust fyrir í slíkum hamförum og mikilvægt að hlusta eftir þörfum þeirra. 

Á Barnaspítala Hringsins og heilsugæslum víða á höfuðborgarsvæðinu og víða um land fá öll börn sem þangað koma rauða blöðru að gjöf auk þess sem Gerður Kristný, rithöfundur og skáld, mun heimsækja börn á Barnaspítala Hringsins og lesa fyrir þau.

Börn háskólanema og Stúdentaráð Háskóla Íslands taka höndum saman og velta því fyrir sér hvað það þýðir að eiga kost á því að læra að lesa, reikna og skrifa. Þau munu í sameiningu koma fyrir 69 risablöðrum á lóð leikskólans Mánagarðs til að minna á að enn eru 69 milljónir barna í heiminum sem ekki njóta þessara mannréttinda sem þeim eru þó tryggð í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Grunnskólanemum býðst að fræðast um réttindi sín í ratleik um miðborg Reykjavíkur sem hefst við klukkuturninn á Lækjartorgi. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna hefur verið staðfestur af öllum löndum heims, utan Bandaríkin og Sómalíu. Hann tryggir börnum réttinn til griða, tækifæra og áhrifa. Ratleikurinn verður opinn gestum og gangandi frá kl. 9.30-16.00 á miðvikudaginn.

Kl. 14.00 ætla SÍF, Samband íslenskra framhaldsskólanema, og Sérsveit Hins hússins að minnast með áhrifaríkum hætti þeirra barna sem aldrei ná að fagna fimm ára afmæ