Viltu næla þér í hjól á góðu verði?

Í dag kl .12-16, standa Barnaheill – Save the Children á Íslandi fyrir hjólasölu í Síðumúla 35 á þeim hjólum sem ganga af í Hjólasöfnun samtakanna. Við hvetjum þá sem vilja ná sér í hjól á góðu verði að líta við.

Söfnunin hefur gengið vel vel í ár og hafa nú þegar safnast um 300 hjól. Öll börn sem sótt hafa um fá hjól úr söfnuninni. 

Um leið og við óskum þeim börnum sem fá hjól úr söfnuninni til hamingju með hjólin, langar okkur að þakka ómetanlegt framlag sjálfboðaliða og sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum frá Æskunni, barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbnum, sem og Sorpu og Hringrás  sem söfnuðu hjólunum á endurvinnslustöðvum sínum.

Verkefnið hlaut styrk úr Lýðheilsusjóði.

Facebókarsíða söfnunarinnar er www.facebook.com/hjolasofnun2014.