Vinátta er forvörn gegn einelti

Einelti eða samskiptamynstur sem getur leitt til eineltis eða útilokunar á gjarnan rætur sínar að rekja allt niður í leikskóla og birtist í setningum eins og „ég vil ekki leiða þig“ eða „þú mátt ekki vera með í leiknum“. Fái einelti að þrífast hefur það ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þá sem fyrir verða. Einelti þrífst gjarnan í umhverfi þar sem skortur er á samkennd, umhyggju, umburðarlyndi og vellíðan. Því er mikilvægt að fyrirbyggja einelti og skapa umhverfi, þar sem ekki er jarðvegur fyrir einelti. Á þessu byggir Vináttu-verkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, sem er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla og byggir á nýjustu rannsóknum á einelti. Verkefnið er danskt að uppruna og heitir Fri for mobberi á dönsku

MJR+ErEinelti eða samskiptamynstur sem getur leitt til eineltis eða útilokunar á gjarnan rætur sínar að rekja allt niður í leikskóla og birtist í setningum eins og „ég vil ekki leiða þig“ eða „þú mátt ekki vera með í leiknum“. Fái einelti að þrífast hefur það ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þá sem fyrir verða. Einelti þrífst gjarnan í umhverfi þar sem skortur er á samkennd, umhyggju, umburðarlyndi og vellíðan. Því er mikilvægt að fyrirbyggja einelti og skapa umhverfi, þar sem ekki er jarðvegur fyrir einelti. Á þessu byggir Vináttu-verkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, sem er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla og byggir á nýjustu rannsóknum á einelti. Verkefnið er danskt að uppruna og heitir Fri for mobberi á dönsku.

Í Vináttu er unnið að því að fyrirbyggja einelti með því að móta góðan skólabrag, eiga góð samskipti og hafa jákvæð viðhorf til allra í hópnum og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans, á umburðarlyndi, virðingu, umhyggju og hugrekki til að setja mörk og bregðast við órétti.

Leikskólarnir fá verkefnatösku þar sem finna má efni handa börnum, foreldrum og starfsfólki leikskólans, auk leiðbeininga þar sem jafnframt eru hugmyndir að frekari verkefnum. Hverri tösku fylgir bangsinn Blær sem er táknmynd vináttunnar í verkefninu. Blær minnir börnin á að gæta hvert annars vel og að vera góður félagi. Blær hjálpar til við ýmis verkefni og faðmar, gleður og huggar börnin.
Með Blæ eru hjálparbangsar fyrir hvert barn leikskólans.

Árangur mjög góður
Samkvæmt niðurstöðum rannsókna í Danmörku er mikil ánægja með efnið hjá starfsfólki og foreldrum og árangur af notkun verkefnisins mjög góður. Efnið hafi góð áhrif á börnin, þau öðlist meiri hæfni til að mynda tengsl og til að eiga samskipti við önnur börn og fullorðna, þau verði hjálpsamari og umhyggjusamari.

Börn úr leikskólum sem unnið hafa með verkefnið fá umsögn um hlýju, samkennd og góða framkomu.
Foreldrar barnanna úr leikskólunum þrýsta gjarnan á grunnskólann sem börnin fara í til að taka upp verkefnið þar.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa nú gefið út efnið og hófst tilraunavinna með verkefnið í samstarfi við sex leikskóla í nú í haust. Vonandi mun öllum leikskólum á Íslandi verða boðin Vináttutaska innan tíðar með hjálp fjáröflunarverkefnis Barnaheilla, Jólapeysunnar.

Söfnunarfé Jólapeysunnar 2014 rennur til Vináttu-verkefnisins og stuðlar þannig að þv&iacu