Vinátta er komin í grunnskóla

Nú hafa Barnaheill einnig gefið út Vináttuverkefni fyrir grunnskóla, en frá árinu  2014 hefur leikskólum staðið efnið til boða og nú eru 40% leikskóla á Íslandi með Vináttu. Vinátta er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir börn frá 1–8 ára og byggir á nýjustu rannsóknum á einelti. Efnið hefur gefið afar góða raun og mikil ánægja er með það.

Margrét Júlía með grunnskólaefniðNú hafa Barnaheill einnig gefið út Vináttuverkefni fyrir grunnskóla, en frá árinu  2014 hefur leikskólum staðið efnið til boða og nú eru 40% leikskóla á Íslandi með Vináttu. Vinátta er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir börn frá 1–8 ára og byggir á nýjustu rannsóknum á einelti. Efnið hefur gefið afar góða raun og mikil ánægja er með það. Vináttuverkefnið er danskt að uppruna og nefnist á frummálinu Fri for mobberi. Það er þýtt, staðfært og gefið út með góðfúslegu leyfi og í samstarfi við Red barnet og Mary Fonden í Danmörku.

Veturinn 2017–2018 taka 14 grunnskólar í sex sveitarfélögum þátt í tilraunavinnu með efnið. Eftir það verður efnið yfirfarið, gefið út að nýju og boðið öllum grunnskólum landsins.

Átta grunnskólar í Kópavogi tóku þátt í námskeiði 19. og 20. september og fengu afhent námsefnið til að hefja tilraunakennslu. Á næstunni verður svo haldið námskeið fyrir skóla hinna sveitarfélaganna.

Ánægja með Vináttu

Mikil ánægja og árangur hefur verið með Vináttu hjá þeim leikskólum sem unnið hafa með efnið; hjá kennurum, foreldrum og ekki síst börnunum. Um 100 leikskólar í fjölmörgum sveitarfélögum vinna nú með Vináttu. Þar af eru nær allir leikskólar Kópavogs.

„Það er það einstaklega ánægjulegt að efnið sé nú tilbúið fyrir grunnskóla og að börn úr Vináttuleikskólunum í heilu sveitarfélagi fái að halda áfram með Vináttu  þegar þau koma í grunnskóla, eins og raunin er í Kópavogi. Það hjálpar til við að brúa bilið á milli skólastiga og stuðlar að samfellu. Þau halda því áfram með það sem búið er að byggja upp. Það eykur öryggi þeirra og auðveldar grunnskólanum að takast á við samskipti barnanna. Það er svo mikilvægt að samfélagið sem heild standi gegn einelti og útilokun og vinni saman að því,“ segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri Vináttu hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.

Þau sveitarfélög og grunnskólar sem taka þátt í tilraunavinnu fyrir grunnskólaefnið veturinn 2017–2018 eru Álfhólsskóli, Hörðuvallaskóli, Lindaskóli Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Smáraskóli,