Vinir Ferguson lögðu af stað Vestfjarðarhringinn á traktorum

Í dag, miðvikudaginn 13. júlí, lögðu þeir Grétar Gústavsson og Karl Friðriksson af stað Vestfjarðahringinn á traktorum og hófst ferð þeirra í Staðarskála. Vinirnir ætla að vera átta daga á leiðinni og munu koma í mark þann 20. júlí á Hvanneyri. Með ferðinni ætla þeir að láta gott af sér leiða og safna styrkjum fyrir Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti. 

Skorað hefur verið á þá félaga að klára hringferðina, en sumarið 2015 fóru þeir hringinn í kringum landið að undanskildum Vestfjörðum. Eftir hringferðinna gáfu þeir út bókina Vinir Ferguson, hringferð um landið gegn einelti og rann salan á bókinni óskipt til styrktar Vináttu.

Grétar og Karl hafa verið vinir í um sextíu ár og kynntust í sveitinni Valdarási í Fitjadal. Þegar Massey Ferguson 35X vélin kom í sveitina var eins og Rolls Royce væri kominn á hlaðið á bænum. Þeir áttu sér þann draum í æsku að keyra um landið á þessum traktor og var það uppsprettan að hringferð þeirra félaga. 

Líkt og í fyrra skiptið er meginmarkmið Grétars og Karls með ferð sinni að styrkja Vináttu, forvarnaverkefni Barnaheilla, sem beinist að því að fyrirbyggja einelti gegn börnum á leik- og grunnskólaaldri. Unnið er með Vináttu í leik- og grunnskólum auk frístundaheimila um land allt, en verkefnið hefur verið innleitt í yfir 65% allra leikskóla á landinu og um 30% grunnskóla. Blær, fjólublár bangsi, er helsta táknmynd Vináttu og mun bangsinn að sjálfsögðu ferðast með félögunum og heimsækja leikskóla á Vestfjörðum.

Stuðningssíðu vinanna má finna hér:  https://www.barnaheill.is/vinirferguson

 

Ferðaáætlun:

13. júlí - Staðarskáli – Hólmavík

14 júlí - Hólmavík – Hamar

15 júlí - Hamar – Ögur

16 júlí – Ögur - Ísafjörður

17 júlí - Ísafjörður – Bíldudalur

18 júlí - Bíldudalur – Flókalundur

19 júlí - Flókalundur – Reykhólar

20 júlí - Reykhólar – Hvanneyri