VÍS er hlekkur í Heillakeðju barnanna

Í aprílmánuði tekur VÍS þátt í Heillakeðju barnanna og leggur til hluta af iðgjöldum líf- og sjúkdómatrygginga sem seldar eru í mánuðinum til stuðnings Barnaheillum - Save the Children á Íslandi. Þátttaka VÍS í Heillakeðjunni er hlekkur í samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Starfsfólk VÍS vill einnig leggja sitt beint af mörkum með áheitum á áheitavefnum heillakedjan.is.

Í aprílmánuði er VÍS hlekkurinn í Heillakeðju barnanna og tekur fyrirtækið mánuðinn að sér til stuðnings samtökunum. Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru í samstarfi við tólf íslensk fyrirtæki í ár sem mynda keðju stuðningsaðila. VÍS leggur verkefninu lið með því að láta 15% af iðgjöldum líf- og sjúkdómatrygginga sem seldar verða í mánuðinum renna til samtakanna. Fyrirtækið efnir til söluátaks á tryggingum og starfsmenn mynda Heillakeðju á áheitavef samtakanna heillakedjan.is.

 

Markmiðið með Heillakeðju barnanna er að standa vörð um og vekja athygli á réttindum barna sem tíunduð eru í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og safna fé til styrktar verkefna í þágu barna á vegum Barnaheilla. Sjaldan hefur verið brýnna en nú að standa vörð um málefni þeirra. Þá er markmið samstarfsins að safna fé til verkefna samtakanna í þágu barna. Samtökin hafa frá stofnun lagt áherslu á starf innanlands og eru helstu áherslur á að standa vörð um réttindi barna, baráttu gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að rödd barna heyrist betur í íslensku samfélagi.

 

Þátttaka VÍS í Heillakeðjunni er hlekkur í samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Starfsfólk VÍS vill einnig leggja sitt beint af mörkum með áheitum á áheitavefnum heillakedjan.is. Á meðfylgjandi mynd má sjá starfsfólk VÍS mynda Heillakeðju starfsmannanna fyrir utan höfuðstöðvar VÍS að Ármúla 3 í Reykjavík.

 

Tíu fyrirtæki hafa nú þegar ákveðið að taka þátt í Heillakeðju barnanna. Þau eru;  Blómaval, Ölgerðin, Lýsi, VÍS, N1, Háskólabíó og Smárabíó, Síminn, Aðföng, Icepharma og Eymundsson. Með þátttöku í Heillakeðjunni hafa öll þessi fyrirtæki skuldbundið sig til að leggja verkefnum samtakanna lið. Hvert þeirra mun fara ólíkar leiðir í sínum mánuði en hægt verður að fylgjast með því sem í boði verður á heimasíðu fyrirtækjanna og á facebook-síðu Heillakeðjunnar.

 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi leggja áherslu á það hérlendis að standa vörð um réttindi barna, á að efla áhrifamátt þeirra og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja samtökin menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara

 

Til baka