Hjálpumst að og verndum börn
Vorsöfnun Barnaheilla 2023 fer fram
dagana 28. apríl til 7. maí. 

Hægt er að nálgast kippuna hjá sölufólki um land allt og á vefverslun Barnaheilla


Lyklakippusala í fjórtán ár til styrktar forvarnafræðslu Verndara barna

Söfnunin í ár ber heitið ,,Hjálpumst að og verndum börn” og rennur allur ágóði af sölunni í forvarnafræðslu Verndara barna

Lyklakippan kostar 3.000 kr. Hægt verður að kaupa lyklakippuna við helstu verslanir og verslanamiðstöðvar, þar sem einstaklingar, íþróttafélög og félagasamtök bjóða lyklakippuna til sölu víðsvegar um landið í apríl og maí. Einnig er hægt að kaup lyklakippuna á vefverslun okkar á sama tíma.

Barnaheill hvetja einstaklinga og félagasamtök til að taka þátt í að gera Ísland að betri stað fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Það er hægt að gera með því að staldra aðeins við og athuga hvar hægt er að sækja sér þekkingu og komast að því hvaða bjargir eru til staðar til að vernda börn. Í sameiningu getum við stuðlað að góðri félagslegri og tilfinningalegri líðan barna og komið í veg fyrir ofbeldi innan fjölskyldna og samfélagsins alls. Má bjóða þér að í hópinn og hjálpa okkur við að vernda börn?

Hægt er að kaupa lyklakippuna í vefverslun okkar.

Einnig er hægt að styðja við söfnunina með millifærslu inn á reikning Barnaheilla:

Reikningur:  0327-26-1989
Kennitala: 521089-1059