Vinátta er forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti ætlað leikskólum, 1. - 4. bekk grunnskóla, frístundaheimilum og dagforeldrum. Verkefnið felst í útgáfu námsefnis sem ætlað er börnum, foreldrum þeirra og starfsfólki sem og námskeiðum fyrir starfsfólk. Vinátta þjálfar félagsfærni og samskipti og stuðlar að góðum skólabrag.

Efnið er danskt að uppruna og heitir á frummálinu Fri for Mobberi. Það er þýtt, staðfært og gefið út í samstarfi við Red barnet – Save the Children og Mary Fonden í Danmörku.

Um er að ræða þrenns konar Vináttuefni. Þú getur pantað efni hér:

Panta efni