Barnaheill undirbúa þróunarverkefni í Síerra Leóne

F.v: Harpa Rut Hilmarsdóttir, stjórnarformaður Barnaheilla, Guðrún Helga Jóhannsdóttir, aðstoðarfram…
F.v: Harpa Rut Hilmarsdóttir, stjórnarformaður Barnaheilla, Guðrún Helga Jóhannsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Barnaheilla og leiðtogi erlendra verkefna og Hákon Broder Lund ljósmyndari, eru mætt til Síerra Leóne.
Þessa dagana eru þrír fulltrúar á vegum Barnaheilla - Save the Children á Íslandi í heimsókn í Síerra Leóne. Tilgangur ferðarinnar er að undirbúa þróunarverkefni sem utanríkisráðuneytið hefur veitt styrk til. Íslendingum er boðið að fylgjast með fréttum af ferðinni á Instagram-reikningi Barnaheilla.
 
Kynbundið ofbeldi, kynlífsþrælkun, mansal og kynferðisofbeldi er stórt samfélagslegt vandamál í Síerra Leóne. Í Pujehun héraði er þörfin á fræðslu og markvissri vinnu mikil og ætla Barnaheill að vinna með samfélögunum að bera kennsl á ofbeldi, fræða, setja upp ferla, skýra tilkynningaleiðir í barnaverndarmálum o.fl. Munu börnin sjálf, kennarar, foreldrar, héraðsyfirvöld og fleiri taka þátt í verkefninu.