29.01.2010
Barnaheill, Savethe Children, á Íslandi standa fyrir stuttri samverustund hjá minnismerkinu Rósinnivið Þvottalaugarnar í Laugardal þriðjudaginn 2. febrúar kl. 12.00. Stundin ertileinkuð þeim börnum sem hafa látist eða eiga um sárt að binda vegnajarðskjálftanna á Haítí.Milljónir barnahafa orðið fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí með einum eða öðrum hætti. Börnhafa misst lífið, hafa særst eða misst foreldra eða systkini í jarðskjálftanum.Hugurinn er hjáþessum börnum, lagðar verða rósir við minnismerkið til að minnast barnanna ogallra þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna.Barnaheill, Savethe Children hafa starfað á Haítí í 30 &aa...
28.01.2010
Nálgast má ársskýrslu frá árinu 2009 með því að smella hér....
28.01.2010
Jarðskjálftarnir á Haítí hafa skapað aðstæður þar sem börn eru berskjölduð fyrir hættum. Fjöldi barna eru án fullnægjandi umönunnunar og eru aðskilin frá foreldrum sem hugsanlega hafa látist eða eru slasaðir.Börnin búa við mikla tilfinningalega streitu og hætta er á að þau líði næringarskort, verði fórnarlömb mansals eða verði misnotuð kynferðislega. Barnaheill, Save the Children, á Haítí vinna að því samkvæmt beiðni Sameinuðu þjóðanna að sameina börn fjölskyldum sínum. Einnig vinna Barnaheill, Save the Children að því, í samvinnu við önnur hjálparsamtök og við ríkissstjórn Haítí, að meta stöðu...
21.01.2010
Nú þegar ein vika er liðin síðan hinn skelfilegi jarðskálfti reið yfir Haítí er ljóst að hann hefur snert líf meira en milljón barna á einn eða annan hátt. Börn hafa látið lífið, eru heimilislaus eða hafa misst foreldra sína. Barnaheill eru nú í kapphlaupi við tímann að veita börnum og fjölskyldum þeirra neyðaraðstoð, öryggi, skjól og næringu. Börn eru mjög berskjölduð í aðstæðum þegar hamfarir eins og á Haítí eiga sér stað. Barnaheill vinna að því ásamt fleiri samtökum að sameina börn og fjölskyldur þeirra. Börn sem hafa orðið viðskila við foreldra sína eru í mikilli hættu á að lenda í hö...
20.01.2010
Barnaheill og IKEA á Íslandi þakka öllum þeim sem með kaupum sínum á mjúkdýrum, tóku þátt í að styðja starf í þágu barna hér á landi en 100 krónur af hverju mjúkdýri runnu óskiptar til Barnaheilla. Alls söfnuðust 421.700 krónur á tímabilinu 1.-24. desember 2009 og mun upphæðin renna til verkefnis Barnaheilla Heyrumst.is. Heyrumst.is er vefur sem gerir börnum og unglingum kleift að koma skoðunum sínum á framfæri og þar geta þau einnig sótt stuðning og upplýsingar á þeirra forsendum. Þetta er fjórða árið í röð sem Ikea styður við starf Barnaheilla og þakka samtökin IKEA á Íslandi fyrir þennan frábæra stuðning.Barnaheil...
14.01.2010
Alþjóðasamtök Barnaheilla - Save the Children sinna neyðaraðstoð vegna hamfaranna á Haítí. Mikið verk er fyrir höndum og segja talsmenn samtakanna að ástandið sé hrikalegt, sérstaklega þar sem allar samgöngur eru úr skorðum og því enn erfiðara að sinna hjálparstarfi.Alþjóðasamtök Barnaheilla - Save the Children sinna neyðaraðstoð vegna hamfaranna á Haítí. Mikið verk er fyrir höndum og segja talsmenn samtakanna að ástandið sé hrikalegt, sérstaklega þar sem allar samgöngur eru úr skorðum og því enn erfiðara að sinna hjálparstarfi.Starfsmenn Barnaheilla - Save the Children á Haítí hafa þurft að fara um fótgangandi eða á mótórhjólum t...
06.01.2010
Barnaheill leitar eftir sjálfboðaliðum til að starfa við barna- og unglingavef Barnaheilla heyrumst.is? Sjálfboðaliðar heyrumst.is veita börnum og unglingum, sem hafa samband á netinu, skriflegar upplýsingar og stuðning. Um er að ræða tiltekinn tímafjölda á mánuði á skrifstofu Barnaheilla.Barnaheill leitar eftir sjálfboðaliðum til að starfa við barna- og unglingavef Barnaheilla heyrumst.is? Sjálfboðaliðar heyrumst.is veita börnum og unglingum, sem hafa samband á netinu, skriflegar upplýsingar og stuðning. Um er að ræða tiltekinn tímafjölda á mánuði á skrifstofu Barnaheilla.Hverjir geta orðið sjálfboðaliðarSjálfboðaliðar geta gerst þeir sem eru 22 ára og eldri, hafa þekkingu &aacut...