Fréttir Barnaheilla

Gleðilega hátíð

jórn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum samskipti og stuðning á árinu sem er að líða.Starfsfólk og stjórn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum samskipti og stuðning á árinu sem er að líða.Skrifstofa samtakanna verður lokuð frá þriðjudegi 23. desember. Við opnum aftur föstudaginn 2. janúar klukkan 10....

Orðsending til jólasveina

Nú nálgast jólin og jólasveinar fara að gera sig tilbúna til bæjarferða með ýmislegt spennandi í pokahorninu í skóinn fyrir börnin. Við Íslendingar látum okkur ekki nægja einn jólasvein eins og flestar þjóðir gera, heldur þrettán sem koma einn af öðrumNú nálgast jólin og jólasveinar fara að gera sig tilbúna til bæjarferða með ýmislegt spennandi í pokahorninu í skóinn fyrir börnin. Við Íslendingar látum okkur ekki nægja einn jólasvein eins og flestar þjóðir gera, heldur þrettán sem koma einn af öðrum. Það hljóta að fylgja þessu gjafastússi mikil útgjöld á jólasveinaheimilinu, því svo virðist sem að j&...

Óskir íslenskra barna í Smáralind

Á morgun, miðvikudaginn 17. desember kl 11:30 verður ljósmyndasýning Ástu Kristjánsdóttur Óskir íslenskra barna formlega opnuð í Smáralind. Nemendur í 10. bekk Smáraskóla verða viðstödd. Ljósmyndirnar byggja á reynslusögum íslenskra barna úr samtímanum sem upplifað hafa ofbeldi, vanrækslu, einelti eða fátækt. Myndirnar sýna óskir þessara barna um betra líf.Á morgun, miðvikudaginn 17. desember kl 11:30 verður ljósmyndasýning Ástu Kristjánsdóttur Óskir íslenskra barna formlega opnuð í Smáralind. Nemendur í 10. bekk Smáraskóla verða viðstödd. Ljósmyndirnar byggja á reynslusögum íslenskra barna úr samtímanum se...

Kertastund í minningu látinna barna

Á ári hverju er annar sunnudagur í desember helgaður minningunni um börn sem hafa látist. Þá sameinast fjölskylda og vinir látinna barna og kveikir á kertum. Barnaheill – Save the Children á Íslandi tóku í fyrsta sinn þátt í viðburðinum sem Roses of Children samtökin standa fyrir í gærkvöldi.. Á ári hverju er annar sunnudagur í desember helgaður minningunni um börn sem hafa látist. Þá sameinast fjölskylda og vinir látinna barna og kveikir á kertum. Barnaheill – Save the Children á Íslandi tóku í fyrsta sinn þátt í viðburðinum sem Roses of Children samtökin standa fyrir í gærkvöldi. Þá söfnuðust aðstandendur saman við Rósina, minnisv...

Vinátta er forvörn gegn einelti

Einelti eða samskiptamynstur sem getur leitt til eineltis eða útilokunar á gjarnan rætur sínar að rekja allt niður í leikskóla og birtist í setningum eins og „ég vil ekki leiða þig“ eða „þú mátt ekki vera með í leiknum“. Fái einelti að þrífast hefur það ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þá sem fyrir verða. Einelti þrífst gjarnan í umhverfi þar sem skortur er á samkennd, umhyggju, umburðarlyndi og vellíðan. Því er mikilvægt að fyrirbyggja einelti og skapa umhverfi, þar sem ekki er jarðvegur fyrir einelti. Á þessu byggir Vináttu-verkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, sem er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla og byggir á n&ya...

Áskoranir hefjast í Jólapeysunni

Jólapeysan er fjáröflunarverkefni Barnaheilla og í ár er safnað fyrir forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum. Fjöldi einstaklinga leggur söfnuninni lið og tekur áskorunum gegn því að fólk heiti á það á jolapeysan.is. Fyrsti einstaklingurinn til að framkvæma sína áskorun er Stefán Karl Stefánsson, leikari, sem klæðir sjálfan Trölla í jólapeysu á morgun, þriðjudaginn 2. desember í Bandaríkjunum, fyrst í viðtali á sjónvarpsstöðinni Fox og svo á leiksviði. Stefán ferðast nú um Bandaríkin með leiksýningunni ,,Þegar Trölli stal jólunum.”Jólapeysan er fjáröflunarverkefni Barnaheilla og í ár er safnað fyrir forvarnarverkefni geg...

Gerast talsmenn barna á afmæli Barnasáttmálans

Afmælishátíð í tilefni 25 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fór fram í Laugalækjarskóla nú í morgun.Afmælishátíð í tilefni 25 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fór fram í Laugalækjarskóla nú í morgun.Dagurinn hófst á því að ráðherrar, þingmenn og nemendur Laugalækjarskóla borðuðu morgunhafragrautinn saman en að því loknu setti innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hátíðina og lýsti afmælisár sáttmálans formlega hafið. Sérstök afmælisnefnd hefur undirbúið viðburði sem muna dreifast yfir árið. Þa...

Jólakort Barnaheilla 2014 komið út

Sala á jólakortum Barnaheilla er hafin. Í ár er það Karl Jóhann Jónsson listmálari sem styður samtökin með því að leyfa afnot af myndinni Emilía í snjónum. Sala á jólakortum Barnaheilla er hafin. Í ár er það Karl Jóhann Jónsson listmálari sem styður samtökin með því að leyfa afnot af myndinni Emilía í snjónum. Myndin á kortinu er af dóttur listamannsins og hún er máluð í anda tímaritaauglýsinga frá miðbiki síðustu aldar.,,Þetta er mynd af yngri dóttur minn að njóta sjókornana, það er alltaf svo skemmtilegur svipur sem kemur á krakka þegar þau snúa andlitinu upp í snjóinn,” segir Karl Jóhann.Sal...

Jólapeysan 2014 er hafin

Jólapeysan, fjáröflunarátak Barnaheilla – Save the Children á Íslandi gegn einelti, er hafin. Í ár er safnað fyrir Vináttu, forvarnarverkefni samtakanna gegn einelti í leikskólum, en þangað má gjarnan rekja rætur eineltis. Jólapeysan 2014 snýst um að standast áskorun, íklædd jólapeysu. Opnað hefur verið fyrir skráningu á jolapeysan.is.Jólapeysan, fjáröflunarátak Barnaheilla – Save the Children á Íslandi gegn einelti, er hafin. Í ár er safnað fyrir Vináttu, forvarnarverkefni samtakanna gegn einelti í leikskólum, en þangað má gjarnan rekja rætur eineltis. Jólapeysan 2014 snýst um að standast áskorun, íklædd jólapeysu.Opnað hefur verið fyrir skrán...

Ungmenni ganga á fund ríkisstjórnarinnar

Fátítt er að utanaðkomandi aðilar gangi á ríkisstjórnarfund en í morgun var brugðið út af þeirri venju þegar fulltrúar úr ungmennaráðum Barnaheilla, UNICEF og umboðsmanns barna hittu ráðherra á fundi í Stjórnarráðinu. Fundurinn í morgun var hluti af dagskrá í tilefni 25 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fagnað verður fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi. Fulltrúar ungmennaráða Barnaheilla, UNICEF og Umboðsmanns barna sátu fund ríkisstjórnar Íslands fyrr í dag í tilefni af afmæli Barnasáttmálanna sem er 25 ára á fimmtudaginn.Forsætisráðherra segir gagnlegt fyrir stjórnmálamenn að ræða vi&...