30.09.2021
Ungheill, ungmennaráð Barnaheilla, bjóða öllum ungmennum á aldrinum 13 - 18 ára að taka þátt í að vinna að mannréttindum barna. Aðalfundur Ungheilla verður haldinn fimmtudaginn 7. október og fer hann fram á skrifstofu Barnaheilla, Fákafeni 9, 2. hæð kl. 16:00 – 19:00.
27.09.2021
Alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children stóðu fyrir rannsókn þar sem skoðuð voru áhrif loftslagsbreytinga á börn. Varpa niðurstöðurnar ljósi á að börn fædd í dag eru töluvert útsettari fyrir öfgakenndum loftslagsbreytingum í samanburði við fólk fætt árið 1960.
22.09.2021
Í aðdraganda kosninga er gott að þekkja stefnu stjórnmálaflokka í málefnum barna. Því brugðu Barnaheill á það ráð að senda flokkunum spurningalista og kölluðu eftir svörum sem enn eru að berast til samtakanna.
09.09.2021
Barnaheill óska eftir tilnefningum til Viðurkenningar Barnaheilla 2021. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningu. Tilnefningarnar fara fram í gegnum vefsíðu Barnaheilla hér, en hægt er að tilnefna einstaklinga, félagasamtök, stofnun eða aðra hópa.
08.09.2021
Barnaheill eiga aðild að samstarfshópnum Náum áttum. Fyrsti fundur vetrarins verður miðvikudaginn 15. september kl 8:30-10:00 í gegnum fjarfundarbúnað. Fjallað verður um kynferðisofbeldi gegn börnum, forvarnir og viðbrögð.
07.09.2021
Sjóvá veitti Barnaheillum 800.000 króna styrk til Haustsöfnunar Barnaheilla, Lína okkar tíma, sem styður vernd stúlkna gegn ofbeldi í Síerra Leóne. Styrkurinn er veittur í tilefni af Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ sem haldið verður 11. september. Barnaheill þakka Sjóvá kærlega fyrir stuðninginn.
07.09.2021
Nú er haustsöfnun Barnaheilla lokið, þar sem Línu-armbönd voru seld frá 26. ágúst - 6. september. Armböndin seldust mjög vel og þökkum við öllum kærlega fyrir stuðninginn. Allur ágóði af sölunni rennur til þróunarverkefnis Barnaheilla í Pujehun héraði í Síerra Leóne, þar sem lögð er áhersla á vernd stúlkna gegn ofbeldi.