28.05.2021
Tugþúsundum manna hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín í Goma héraði í lýðstjórnarlýðveldinu Kongó eftir að eldgos hófst skyndilega í Nyiragongofjalli nærri byggð þann 22. maí síðastliðinn. Í óreiðunni og jarðskjálftunum sem hafa fylgt eldgosinu hafa 939 börn orðið viðskila frá fjölskyldum sínum
26.05.2021
Í tíu ár hafa tæplega 3000 íslensk börn og ungmenni notið góðs af hjólasöfnun Barnaheilla. Í fyrra vor var í fyrsta sinn í sögu hjólasöfnunarinnar ákveðið að senda afgangshjól til barna í Afríku sem þurfa að ganga langa leið í skóla á hverjum degi.
21.05.2021
Útivera, útinám og útileikir verða meira áberandi í starfi skólanna og hefðbundin verkefni vetrarins eru jafnvel sett á hilluna. Þó sums staðar fari Blær bangsi í sumarfrí þá á Vinátta, hugmyndafræðin og gildin, alltaf við, bæði úti og inni, að vetri, sumri, vori og hausti. Góð samskipti eru gulls ígildi. Fjöldi verkefna Vináttu er jafnt hægt að vinna úti sem inni og sum þeirra eru einkum hugsuð utandyra. Þar má nefna verkefni og leiki í bókinni Vinátta í útivist- útinám og leikur.
21.05.2021
Börn eru einstaklingar með sín eigin sjálfstæðu mannréttindi. Þau eru ekki réttminni en hinir fullorðnu, þvert á móti, þau njóta á ýmsan hátt ríkari réttinda en hinn almenni fullorðni einstaklingur því þau eru talin þurfa stuðning og vernd sem gengur lengra en fullorðnir almennt þurfa á að halda.
20.05.2021
Nú fer að nálgast sá tími árs að fjölskyldur fara að huga að sumarfríi og grunnskólar að skólalokum þetta skólaárið. Skólalokin eru ávallt þáttaskil í lífi hvers barns og nýtt upphaf hefst svo í sumarlok með nýjum áskorunum og nýjum verkefnum.
18.05.2021
Frétta - og vefmiðlar loga enn og aftur af mikilvægri og þarfri umræðu um kynferðisofbeldi og trúverðugleika þolenda við tilkynningar eða kærur sem lagðar eru fram í kjölfar ofbeldis. Sumir af þeim voru börn þegar þau urðu fyrir slíku ofbeldi. Það er ekki sársaukalaust að lesa þessar sögur en þær gefa von um að fólk sjái réttari mynd af þessari “ósamþykktu” umræðu í íslensku samfélagi eins og annars staðar í heiminum.
18.05.2021
Alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children kalla eftir tafarlausu vopnahléi, þar sem fjöldi barna hefur verið drepinn í átökum síðastliðna viku. Yfir þúsund manns á Gaza svæðinu, þar af 366 börn, hafa einnig særst. Yfir 500 húsnæði hafa verið gjöreyðilögð í átökunum undanfarna daga og yfir 30 skólar og fjöldi heilsugæsla hafa einnig verið skemmd.
12.05.2021
Ný stjórn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi var kjörin á aðalfundi samtakanna þann 11. maí. Tvær breytingar voru á stjórn frá árinu áður en Bjarni Torfi Álfþórsson tók sæti í stjórninni ásamt Funa Sigurðssyni sem tók sæti sem vararmaður. Úr stjórn gengu Páll Valur Björnsson og Birkir Már Árnason. Þakka Barnaheill þeim kærlega fyrir vel unnin störf.
12.05.2021
Nú er úthlutun hjóla til barna og ungmenna lokið en alls bárust 299 umsóknir um hjól í ár. Nú hefst hin árlega hjólasala Barnaheilla n.k. fimmtudag og verða afgangshjól á góðu verði seld til styrktar verkefnum Barnaheilla. Allir eru velkomnir í hjólasöluna.
10.05.2021
Næsti fræðslufundur Náum áttum-hópsins verður miðvikudaginn 12. maí 2021 kl. 8:30 - 10:00 á ZOOM. Fundarefnið að þessu sinni ber yfirskriftina Netið gleymir ekki. Alvarlegur glæpaheimur selur nekt barna og ungmenna. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga.