Fréttir Barnaheilla

125 börn drepin eða illa særð síðan vopnahlé hófst í mars

Að minnsta kosti 43 börn hafa verið drepin og önnur 84 særð í Norð-vestur Sýrlandi frá því að vopnahlé hófst í mars 2020, samkvæmt greiningu Barnaheilla - Save the Children. Í mars sömdu stríðsaðilar um vopnahlé en samkvæmt nýjustu skýrslu Save the Children á svæðinu hafa stríðsátök aukist og nú í október hefur ástandið aldrei verið verra. Börn og fjölskyldur þeirra eru fórnarlömb árása, þar sem heimili, sjúkrahús og skólar hafa orðið fyrir sprengingum.

125 börn drepin eða illa særð frá því að samið var um vopnahlé í mars

Að minnsta kosti 43 börn hafa verið drepin og önnur 84 særð í Norð-vestur Sýrlandi frá því að vopnahlé hófst í mars 2020, samkvæmt greiningu Barnaheilla - Save the Children. Í mars sömdu stríðsaðilar um vopnahlé en samkvæmt nýjustu skýrslu Save the Children á svæðinu hafa stríðsátök aukist og nú í október hefur ástandið aldrei verið verra. Börn og fjölskyldur þeirra eru fórnarlömb árása, þar sem heimili, sjúkrahús og skólar hafa orðið fyrir sprengingum.

Barnaheill senda hvatningu til fjölmiðla vegna umfjöllunar um börn

Barnaheill – Save the Children á Íslandi fá títt ábendingar um og skoða umfjöllun fjölmiðla um mál sem tengjast börnum með einum eða öðrum hætti. Samtökin verða því miður vör við að þörf sé á að árétta mikilvægi þess að um börn sé fjallað á þann hátt að ekki brjóti gegn réttindum þeirra, m.a. til friðhelgi einkalífs.

Nýr vefur um var Barnasáttmálann opnaður á degi mannréttinda barna

Á hinum endurnýjaða vef, www.barnasattmali.is, er að finna fræðslu um mannréttindi barna. Margt nýtt og spennandi er á vefnum sem auðveldar fræðslu um þau. Þar er Barnasáttmálinn birtur með barnvænum texta, hann er táknmálstúlkaður og á vefnum er vefþula sem hentar blindum og sjónskertum. Hann hefur jafnframt að geyma heildartexta Barnasáttmálans og Barnasáttmálann á mörgum tungumálum.

Vináttufréttir

Í tilefni af Degi gegn einelti sem haldinn er árlega þann 8. nóvember kynntu Barnaheill – Save the Children á Íslandi Vináttu fyrir grunnskóla. Um er að ræða nýtt og endurbætt efni, en Vinátta hefur verið í tilraunakennslu í nokkrum grunnskólum frá árinu 2017.

Guðmundur Fylkisson hlýtur Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi

Guðmundur Fylkisson hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2020 fyrir störf í þágu barna og ungmenna sem eru í vanda og þá nálgun sem hann hefur í samskiptum sínum við þau. Guðmundur leggur sig fram um að nálgast ungmenni af virðingu og nærgætni til að auka ekki á vanlíðan þeirra og skaða.

Frábærar viðtökur við Símalausum sunnudegi

Símalaus sunnudagur var haldinn 15. nóvember s.l. með þátttöku rúmlega 3.500 fjölskyldna.

Nýtt og endurbætt Vináttunámsefni kynnt í tilefni af Degi gegn einelti

Í tilefni af Degi gegn einelti sem haldinn er árlega þann 8. nóvember, kynntu Barnaheill – Save the Children á Íslandi nýútkomið forvarnaefni gegn einelti fyrir grunnskóla. Um er að ræða hluta af Vináttu – forvarnaverkefnis gegn einelti fyrir börn frá 0 – 9 ára.

Upplifum ævintýrin saman - Símalaus Sunnudagur

Snjallsímar og önnur snjalltæki eru skemmtileg og gagnleg tæki sem hafa umbylt því hernig við eigum í samskiptum, nálgumst upplýsingar og verjum tíma okkar. Í mörgum tilvikum eru áhrif tækninnar jákvæð og sniðgug en einnig hefur verið bent á skuggahliðar hennar. Óhófleg notkun á snjalltækjum getur meðal annars haft áhrif á samskipti innan fjölskyldunnar - samskiptin og nándin minnka því það er eitthvað annað sem stelur athyglinni.

Líðan barna og ungmenna á tímum Covid-19

Næsti kynningarfundur Náum áttum-hópsins verður miðvikudaginn 11. maí 2020 kl. 8:30 - 10:00 á ZOOM. Fundarefnið að þessu sinni ber yfirskriftina Líðan barna og ungmenna á tímum Covid-19. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga.