14.09.2023
Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa um árabil vakið athygli á málefnum barna sem búa við fátækt og þrýst á stjórnvöld að útrýma fátækt meðal barna á Íslandi. Í samstarfi við önnur Barnaheill - Save the Children samtök í Evrópu hafa samtökin unnið fjölda skýrslna um málefnið og þar með vakið athygli á því að óásættanlegt er að börn búi við fátækt, enda ber að tryggja börnum þau réttindi sem þau eiga samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Fátækt kemur í veg fyrir að börn njóti þeirra réttinda.
13.09.2023
Árlega veita Barnaheill – Save the Children á Íslandi viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Barnaheill óska eftir tilnefningum til Viðurkenningar Barnaheilla og er öllum frjálst að senda inn tilnefningu
31.08.2023
Í dag hefst Haustsöfnun Barnaheilla og stendur yfir til 10. september. Armbönd verða seld víðsvegar um landið og í vefverslun Barnaheilla. Söfnunin er fjáröflunarleið Barnaheilla til styrktar erlendu starfi Barnaheilla.
28.08.2023
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa sett sér sjálfbærni stefnu og þar með ákveðið að lágmarka neikvæð áhrif af starfsemi samtakanna á umhverfið
10.08.2023
Flest okkar eiga einhverjar minningar úr bernsku sem tengdar eru Barbiedúkkum og öðru Barbiedóti.
08.08.2023
Árlegt Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 19. ágúst næstkomandi. Við hvetjum hlaupara til að hlaupa fyrir börnin með að efna til áheita fyrir Barnaheill – Save the Children á Íslandi. Hér er hægt að skrá sig sem hlaupara fyrir samtökin og renna áheit þá óskipt til verkefna í þágu barna.
20.06.2023
Barnaheill - Save the Children hafa gefið út myndaseríu til heiðurs seiglu flóttabarna. Undanfarna tvo mánuði hafa Barnaheill - Save the Children tekið viðtöl við flóttabörn í Bangladess, Nígeríu, Perú og Úkraínu.
14.06.2023
Að minnsta kosti 46 manns, þar af 23 börn, létu lífið í árás sem gerð var á flóttamannabúðir í Ituri-héraði í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó á mánudagsmorgun.