29.03.2019
Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, og Guðrún Helga Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri erlendra verkefna, eru staddar í Úganda á vegum samtakanna við undirbúning nýs þróunarverkefnis í samstarfi við landsskrifstofu Save the Children í Úganda.
25.03.2019
Á morgun, 26. mars, verða fjögur ár síðan stríð braust út í Jemen. Síðustu tólf mánuði hafa að minnsta kosti 226 jemensk börn látið lífið og 217 slasast í loftárásum Sádi-Araba og bandamanna þeirra. Það eru 37 börn í hverjum einasta mánuði.
22.03.2019
Málþing um börn og samskipti á internetinu var haldið í dag og tókst með ágætum. Fred Langford, forseti Inhope, alþjóðlegra regnhlífasamtaka ábendingalína, og aðstoðarframkvæmdastjóri Internet Watch Foundation var aðalfyrirlesari.
19.03.2019
Í dag var tilkynnt um úthlutun úr Lýðheilsusjóði og hlutu tvö verkefni Barnaheilla styrk úr sjóðnum auk þess sem Verndarar barna - Blátt áfram, sem hafa sameinast Barnaheillum hlutu styrk.
18.03.2019
Næsti morgunverðarfundur Náum áttum-hópsins verður miðvikudaginn 20. mars kl. 8:15–10:00 á Grand hótel. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er: Verum snjöll – Jafnvægi í snjalltækjanotkun barna.
15.03.2019
Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi var hleypt af stokkunum um hádegisbil í dag, 15. mars, í Sorpu á Sævarhöfða. Að þessu sinni var það persónan Matthildur úr samnefndu leikriti í uppfærslu Borgarleikhússins sem afhenti fyrstu hjólin í söfnunina.
14.03.2019
Barnaheillum barst nýverið beiðni frá lögmannsstofunni Rétti um álit samtakanna á rétti barna til að tjá sig beint og milliliðalaust við stjórnvöld vegna íþyngjandi ákvörðunar sem varðar hagsmuni þeirra.
11.03.2019
Í könnun Barnaheilla – Save the Children kemur fram að þriðjungur barna í Sýrlandi upplifir óöryggi „alltaf eða oft“ og börnin eru hrædd og sorgmædd. Þau krefjast friðar og vilja komast aftur í skóla. Niðurstöður könnunarinnar eru kynntar í skýrslunni A Better Tomorrow – Syria's Children Have their Say.
05.03.2019
Stjórnir Barnaheilla og Blátt áfram hafa tekið þá ákvörðun að sameina krafta sína undir nafni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Verkefni Blátt áfram verða því hluti af þeirri starfsemi Barnaheilla sem snýr að vernd barna gegn ofbeldi.
01.03.2019
Ný skýrsla um niðurstöður rannsóknar, sem Velferðarvaktin fól EDDU öndvegissetri að gera, á lífskjörum og fátækt barna á Íslandi 2004–2016.