20.10.2022
Vegna fréttaumfjöllunar um einelti síðastliðna daga vilja Barnaheill – Save the Children á Íslandi benda á að samtökin bjóða upp á heildstæða fræðslu og forvarnir gegn einelti og ofbeldi og er mikil sérþekking og reynsla innan samtakanna í þessum málaflokkum.
11.10.2022
Sprengjum hefur rignt yfir Kiev höfuðborg Úkraínu síðastliðinn sólahring. Þar á meðal lenti ein sprenging á leikvöll sem er 1 kílómeter frá skrifstofu Barnaheilla Í Úkraínu. ,,Við fundum jörðina skjálfa,“ sagði starfsmaður Barnaheilla í Úkraínu.
10.10.2022
Í ljósi þeirra atburða sem hafa átt sér stað innan framhaldsskólanna og á meðal nemenda þeirra á undanförnum dögum taka Barnaheill heilshugar undir ákall nemenda um að virk viðbragðsáætlun sé til staðar til þess að taka á kynferðisbrotum. Fræða þarf starfsfólk, kennara og stjórnendur um kynferðisofbeldi og hvernig eigi að bregðast við því. Þá er ekki síður mikilvægt að jafnréttis- og kynjafræði sé kennd á öllum skólastigum líkt og nemendur hafa gert kröfu um.
05.10.2022
Þann 3. nóvember verður Vináttu- málþing frá kl 12:30-17:00 á Grand hótel í Reykjavík. Öllum leik- og grunnskólum auk frístundaheimila er boðið að taka þátt en þó verður takmarkaður sætafjöldi.
03.10.2022
Ellen Calmon hefur tekið formlega við störfum sem ný framkvæmdastýra Barnaheilla. Hún tekur við störfum eftir reynslumikla ferð til Jórdaníu og Ítalíu þar sem hún heimsótti verkefni Barnaheilla – Save the Children þar í landi. Hún meðal annars heimsótti Za’atari flóttamannabúðirnar sem liggja í norðurhluta Jórdaníu við landamæri Sýrlands. Þær eru stærstu flóttamannabúðir í heimi með 81.000 íbúa án ríkisfangs.
14.09.2022
Barnaheill eiga aðild að samstarfshópnum Náum áttum. Fyrsti fundur vetrarins verður miðvikudaginn 21. september kl 8:30-10:00 í gegnum fjarfundarbúnað. Fjallað verður um áhrif skilnaðar á börn. Á meðal fyrirlesara er Elva Dögg Ásuogkristinsdóttir, fulltrúi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, Gyða Hjartardóttir, félagsráðgjafi og Stella Hallsdóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni barna.